17.02.1922
Efri deild: 3. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í C-deild Alþingistíðinda. (1327)

3. mál, prestar þjóðkirkjunnar og prófastar

Forsætisráðherra (J. M.):

Eins og sjest á fylgiskjalinu hjer á eftir, er frv. þetta komið frá biskupi. Það kom þegar í ljós, þegar launalögin voru komin í gildi, að breyta þurfti ýmsum ákvæðum um presta og embætti þeirra, til þess að þau gætu komist í fult samræmi við hin nýju ákvæði um laun presta.

Úr því að breyta þurfti ýmsum atriðum í löggjöfinni um embætti presta, þótti rjett að safna saman í eitt fleiri ákvæðum en þeim einum, er snertu launin, og gera dálitlar breytingar á. En hin nýjustu lög og fyrirmæli þar að lútandi hafa þó eigi verið tekin með, því að á því virtist eigi vera nauðsyn.

Jeg vil svo benda á einstök atriði í frv. þessu, og er þá fyrst að minnast á I. kafla. Hann greinir almenn fyrirmæli um skipun presta og setningu, vígslu og embættisskilyrði.

Í 2. málsgr. 2. gr. er það nýmæli, að maður, sem tekur prestsvígslu erlendis að evangelisk-lúterskum sið, getur fengið embætti hjer.

Þá vil jeg benda á nýmæli í 3. málsgr. 3. gr., að umsækjanda, sem hefir hin almennu skilyrði til að vera prestur þjóðkirkjunnar, er heimilt að skjóta til úrskurðar synodalrjettar, ef fyrir skyldi koma, að honum yrði neitað um að verða tekinn á skrá þeirra umsækjenda, er kjósendur skulu velja um. Slíkt er að vísu mjög sjaldgæft, en fyrir getur það þó komið, og því sýnist rjett að setja ákvæði þar um.

Þá er hjer og líka færður niður vígslualdur presta, úr 25 árum niður í 24 ár.

Í 4. gr. 2. lið er ákvæði um að gera rýmri aðgang að prestsembættum. Það er frjálslegt ákvæði, og getur komið fyrir, að heppilegt sje, að til þess megi taka.

Þá er í 5. gr. allmikil breyting, þar sem svo er kveðið á, að skipun presta í embætti skuli miða við 1. dag mánaðar, en eigi við fardaga, eins og verið hefir, og þeir þá skyldir að taka við embættinu án tafar. Slíkt ákvæði virðist sjálfsagt, því að mjög ósanngjarnt er að láta söfnuði vera langan tíma þjónustulausa eða því sem nær, máske fram undir ár. — Það getur verið þægilegra fyrir prestinn að þurfa ekki að taka við fyr en í fardögum, eins og áður hefir verið. En einkahagur presta verður að sjálfsögðu að víkja fyrir hagsmunum safnaðanna. Undanþágu má þó veita frá þessu, þegar sjerstaklega stendur á.

Í 7. gr. eru sett skýrari ákvæði um ábyrgð þá, sem prestar hafa á húsum og mannvirkjum á embættisbústöðum sínum, og skulu þeir undirgefnir ábúðarlögin, eins og leiguliðar á leigujörðum. Fyr hefir að minsta kosti af sumum verið litið á prestana sem eigendur prestssetranna um tíma.

Í 9. gr. er nýtt ákvæði, í samræmi við það, sem tíðkast hefir lengi.

Þá er í 11. gr. tekið upp ákvæði, sem er í gildi, en rjett þykir að minna á, og það er, að ekki megi nota kirkjur til þess, sem eigi er samboðið tilgangi þeirra, svo sem til geymslu o. fl.

Í 12. og 13. gr. er sett ákvæði um það, að prestar megi ekki hafa annar leg störf á hendi, nema með samþykki biskups. Er slíkt ákvæði nauðsynlegt, því að mjög óheppilegt er, að embættismenn hafi ýms störf á hendi, sem eru með öllu óviðkomandi embættum þeirra og máske miður samrýmileg. Um þetta hafa víða verið sett ákvæði, sem ganga enn lengra en þetta.

Um 17. gr. er það að segja, að þar eru sett ákvæði um aukaverk presta og ferðapeninga, sem sumum mun ef til vill þykja ganga nógu langt, prestunum í hag. En jeg get eigi talið það ósanngjarnt, að prestar fái sinn ferðakostnað greiddan, eins og t. a. m. læknar fá sinn.

Í 18. gr. er ákvæði um erfiðleikauppbót til presta, sem yfir sjó þurfa að sækja, og tel jeg slíkt ákvæði mjög æskilegt, því að sum prestaköll eru svo erfið, að ekki er hægt að búast við, að unt sje að halda prestum þar til lengdar.

Í eldri launalögum er gert ráð fyrir erfiðleikauppbót, en í núgildandi launalögum er ekkert ákvæði um slíkt, og ekki getur nú talist minni sanngirni til að veita slíka uppbót, því að allur fararbeini hefir margfaldast í verði síðan styrjöldin hófst. Líka ættu síður að koma fram kröfur um skiftingu prestakalla, ef slík uppbót væri veitt.

Hefi jeg svo eigi ástæðu til að fara frekar út í einstök atriði þessa frv. og læt því þetta nægja að sinni.