18.02.1922
Efri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (1333)
4. mál, atvinnulög
Fjármálaráðherra (M. G.):
Þetta frv. til atvinnulaga er borið fram til þess að fullnægja ályktun Alþingis frá 13. ágúst 1919, að því leyti sem henni er ekki fullnægt með lögum nr. 10, 18. maí 1920, um eftirlit með útlendingum. En þess ber að geta, að ágreiningur getur jafnan orðið um, hversu margar tegundir atvinnu skuli taka í lagabálk sem þennan. Í þetta frv. hafa að eins verið tekin upp ákvæði um verslun, bankastarfsemi og annað, er þar telst til, iðju, námurekstur og veitingar. Hins vegar er alveg slept hjer ýmsum atvinnugreinum, sem nú þegar er skipað með lögum, svo sem er t. d. um málfærslumenn, læknaleyfi, bifreiðastjórn, atvinnu við siglingar o. fl. o. fl. Eru taldar ástæður fyrir þessu í athugasemdum við frv., og hirði jeg ekki að endurtaka þær hjer. Fyrir þetta þing verður og lagt frv. um fiskiveiðar í landhelgi, því að rjettara þykir, að ákvæðin um fiskiveiðar sjeu í sjerstökum lögum.
Til athugunar fyrir væntanlega nefnd í þessu máli vil jeg geta þess, að síðan þetta frv. var samið hefir sú breyting verið gerð á starfsskiftingunni milli ráðherranna, að bankamálin hafa verið lögð undir fjármálaráðuneytið, og af þessari breytingu leiðir sennilega, að rjettast er að breyta ákvæðum frv. um, að leyfi til bankastarfsemi, víxlarastarfsemi og verðbjefamiðlunar skuli gefin út af atvinnumálaráðherra, á þann veg, að þetta hverfi undir fjármálaráðherra.
Frv. þetta mun eiga heima í allshn., og legg jeg til, að því verði þangað vísað að lokinni þessari umr.