23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (134)
1. mál, fjárlög 1923
Sveinn Ólafsson:
Jeg hefi við atkvæðagreiðsluna þokast meir og meir að þeirri skoðun, að sparnaðarskrafinu fylgdi ekki jafnmikil alvara og búast mætti við hjá mörgum háttv. deildarmönnum. Sjerstaklega hefi jeg þó sannfærst um það að alvaran er ekki mikil hjá háttv. fjvn. Hefir atkvgr. fallið alleinkennilega og yfirleitt verið á móti því, að fjárveitingar væru lækkaðar. Auðvitað hefir þetta gengið nokkuð á skakk, en svona virðist mjer heildaryfirlitið.
Eftir allan þennan bardaga hefir einn stór liður fallið. Það eru símarnir; en eftir standa óbreyttir þeir liðir sem minstan rjettinn eiga á sjer og á jeg þar einkanlega við fjárveitingar eins og til þýðingar Faust í 15. grein 19 b., sem þó hefir hlotið flest atkvæði og ómaklegust. En um þetta tjáir nú ekki að fárast.
Jeg á hjer 2 brtt. Önnur þeirra er við 16. gr. 30. Kæmi mjer ekki á óvart þótt till. þessi yrði feld, því að þessi liður á þó meiri rjett á sjer en sá, sem jeg nefndi áðan. En það virðist þó auðsætt, að starf þessa aðstoðarmanns húsagerðarmeistara hlýtur að verða ærið lítið, þegar fresta á öllum opinberum byggingum ríkissjóðs. Sýnist því eðlilegt, að reynt væri að losna við þennan mann nú, einkanlega þar sem laun hans eru ekki lögákveðin.
Hin brtt. er við 21. gr., en jeg ætla í samráði við háttv. fjvn. að fresta henni til 3. umr. fjárlaganna.
Jeg vil ekki tefja tímann á því að fara að ræða um brtt. þær, sem fram hafa komið, en þó vil jeg taka það fram, að mjer fanst skörin vera farin að færast upp í bekkinn þegar jeg sá 58. brtt. fjvn., þar sem færa á eftirlaun Sigurðar Jónssonar fyrv. ráðherra úr 1500 kr. niður í 1000 kr., jafnframt því sem 500 kr. styrkur er ætlaður til prjónakonu einhverrar vestur í Dölum. Er ekki ósennilegt að ætla, að lækkunin á launum Sigurðar Jónssonar sje fram komin til þess að geta veitt prjónakonunni þennan styrk, og mun þá ljett verk að ættfæra brtt. Skal jeg svo ekki tefja tímann meira að þessu sinni.