25.03.1922
Neðri deild: 32. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í C-deild Alþingistíðinda. (1375)
47. mál, myntlög
Jón Þorláksson:
Jeg ætla að eins að beina þeirri spurningu til háttv. nefndar, hvaða ástæður hún hafi fyrir því, að best sje, að við tökum myntsláttuna í okkar hendur sem fyrst. Það stendur hjer í nefndarálitinu, og hefi jeg verið að velta fyrir mjer, hvaða ástæður hv. nefnd hafi fyrir sjer í þessu efni, en ekki getað fundið neinar; enda eru engar ástæður fyrir þessu greindar í nefndarálitinu.