13.03.1922
Neðri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í C-deild Alþingistíðinda. (1394)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Gunnar Sigurðsson:

Það má víst líta svo á, að ræða sú, sem hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) flutti í þessu máli í fyrradag, hafi verið stefnuskrárræða sparnaðarnefndarinnar, þar sem hv. þm. (S. St.) er ritari og frsm. nefndarinnar, að minsta kosti í þessu máli, og þar sem enn fremur er vísað til ástæðna fyrir þessu frv. í öðrum frv. frá nefndinni.

Jeg vil nú í nafni mínu og enda nokkurra fleiri hv. þm., sem berum ekki neitt sparnaðarskilti á okkur, en viljum vera og erum sparnaðarmenn, gera nokkrar athugasemdir við fyrnefnda ræðu.

Jeg tek það fram, að jeg vil þó ekki með því óvirða viðleitni hv. sparnaðarnefndar, enda hefi jeg þegar fylgt henni að málum, og mun gera framvegis, þegar jeg sje, að um sannan sparnað er að ræða.

Svo virtist sem hv. þm. (S. St.) vildi telja kreppu þá, sem vjer erum nú komnir í, að miklu leyti að kenna fullveldinu. Vera má nú, að einhver útgjöld hafi af því flotið, sem annars hefðu sparast, en aðrar eru þó meginorsakirnar. Fjárhagskreppan, sem nú stendur yfir, og útgjaldabákn landssjóðs er gamalt mein. Aðalaukning útgjalda ríkissjóðs varð á veltiárunum, sjerstaklega á þingunum 1916–1918. Þm., eins og aðrir, urðu bjartsýnir, þegar allir framleiðendur græddu og alt stórhækkaði í verði. Með öðrum orðum, stjórn og þingi fórst eins og einstaklingum og fjelögum, sem nú í fjárhruninu hafa tapað ógrynni fjár. Allir bygðu á því, að veltiárin mundu halda áfram og að verðhrunið mundi ekki koma svona fljótt. Þetta var heldur ekki láandi. Enginn í heiminum gat sjeð þetta fyrir. Þvert á móti voru allar líkur fyrir því, að hrunið mundi ekki koma svona sviplega. Þrjú stórveldi virtust toga í þann streng, að halda verðlaginu uppi. Öðru megin verkamenn, með því að halda kaupinu sem hæstu; hinu megin bankar og ríkisstjórnir, sem höfðu hag af því vegna skulda sinna og viðskifta, að verðið hjeldist uppi. En jafnvel þessir sterku strengir hrukku líka. Verðfallið kom og fór geyst. Mögru kýrnar voru ekki lengi að eta upp þær feitu. Það fór um ríkið eins og fjelög og einstaklinga, sem höfðu mikið í veltu. Það komst snögglega í fjárþröng.

Því miður hefir farið svo um fjölmarga einstaklinga og fjelög, að tap þeirra hefir farið langt fram úr eignum. Sem betur fer er þessu langt frá svo farið um ríkissjóð vorn.

Undir eins og fjárkreppan varð fyrirsjáanleg, varð það fyrsta viðfangsefni öllum hugsandi mönnum, hvað til varnar mætti verða. Það fyrsta, sem menn sáu, var að taka lán. Jeg var nú einn af þeim, sem ákveðnast hvöttu til að taka lán í fyrra. Jeg vildi taka það stórt lán, að það nægði til þess að greiða þær skuldir, bæði ríkisins og einstaklinga, sem fallnar voru í gjalddaga. Jeg vildi taka svo stórt lán, að það gæti komið bönkunum á rjettan kjöl, svo að þeir yrðu starfhæfir aftur. Hefði þetta ver ið gert, mundi gengið á íslenskri krónu, sem nú er mjög óhagstætt, hafa lagast sjálfkrafa.

Lán var nú að vísu tekið, en það var of seint tekið og var of lágt. Jeg lagði til, að tekið yrði 15–20 milj. kr. lán, en það, sem tekið var, var ekki nema 10 miljónir. Nú eru „dægurskuldir“ 5–6 milj. kr., svo að jeg hefi þá ekki farið langt frá vegi. Þó er jeg ekki að eggja til þess, að tekið sje meira lán nú, úr því sem komið er.

Hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) sagði, að eina ráðið til bjargráða væri sparnaður. Jeg held nú, að bjargráðin sjeu að minsta kosti tvö. Það er sparnaður og framleiðsla, og framleiðslan er aðalatriðið; hún er jákvæða hliðin; sjerstaklega er nauðsynlegt nú að styðja hana af alefli, því nú er, sem betur fer, að rofa til um sölu afurða, a. m. k. að því er sjávarafurðirnar snertir. Þess vegna má heldur ekki spara það fje, sem verja á til þess að efla framleiðsluna.

En það er víðar, sem ekki má spara. Það má ekki þegar sómi landsins eða stofnana þess er í veði. Sparnaðurinn er auðvitað ágætur, en hann verður að vera innan sinna takmarka.

Sumir telja ekki borga sig að framleiða; þetta er kórvilla. Það borgar sig altaf fyrir þjóðina í heild sinni, að sem mest sje framleitt. Og eins eiga menn að búa sem mest að sínu. Það er sannur sparnaður. Mætti í því sambandi nefna fráfærur, sem sjálfsagt er að taka upp aftur nú, þegar kjöt lækkar í verði.

Jeg tel nú einmitt, að þetta frv., um afnám kenslu í klassiskum fræðum við háskólann, sje fyrst og fremst þess eðlis, að það komi við heiður landsins, og á því svæði má ekki beita sparnaðinum, eins og jeg sagði áðan. Háskólinn er þjóðinni hjartfólgin stofnun, og hann er það vegna þess, að hann er þjóðleg stofnun.

Af þessu leiðir, að háskólinn verður að leggja mesta áherslu á þjóðleg fræði, tungu landsins og sögu þess. Á þessum grundvelli á hann að verða svo traustur, að til hans verði sótt af erlendum mönnum, enda hafa útlendingar sótt hann fyr og síðar, og nú eru þar t. d. tveir Þjóðverjar.

Nú verður ekki um það deilt, að enginn getur lesið sögu Íslands til hlítar, nema hann hafi góða þekkingu í latínu að minsta kosti. Latínan var undirstaða undir mentun og menningu þjóðar vorrar um langan tíma, og fjöldi af ritum, sem snerta sögu vora og annara Norðurlandaþjóða, eru rituð á latínu. Danski sagnaritarinn þekti, Saxo Grammatikus, sem reit alt á latínu, hefir ritað mikið um Norðurlönd, og ýmislegt, sem snertir Ísland, þótt aðalrit hans (Gesta Danorum) sje Danmerkur saga. Þá má nefna Þormóð Torfason, sem var sagnaritari Friðriks III., og Arngrím lærða og loks Finn biskup Jónsson, sem reit kirkjusögu Íslands. Allir rituðu þessir á latínu, og margir fleiri. Allir vita, hver fjöldi til er af handritum á latínu frá þessum tímum, bæði í bundnu og óbundnu máli. Væri nú hart, ef sigla þyrfti til þess að láta lesa þau handrit fyrir sig, ef á þyrfti að halda. Það er því augljóst, að oss er þörf að eiga hjer við háskólann einn sjerfræðing í klassískum fræðum.

Nú má að vísu segja, að sá, sem nú skipar sætið, sje ekki sjerfræðingur í þessum fræðum, en þetta gæti ekki sannað það, að embættið ætti ekki að vera til, heldur þá að sessunautur minn. hv. þm. Dala. (B. J.), ætti ekki að vera í því. En jeg heyri nú talið af flestum, að hann sje vel að sjer í þessum fræðum.

Jeg þykist nú hafa sýnt, að þetta kemur við sóma vorrar merkustu stofnunar, háskólans. En til frekari áherslu vil jeg leyfa mjer að benda á ummæli eins þess hv. þm., sem flutti frv. um að stofna embætti þetta, á Alþingi 1914. Hann sagði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er satt, að við erum minsta þjóðin, sem eigum háskóla, og jeg fyrir mitt leyti var þess ekki mjög fýsandi, að hann væri stofnaður. En úr því að við erum búnir að stofna hann, þá er það mín skoðun, að við eigum að gera hann svo úr garði, að hann geti orðið okkur til sóma.“ (Alþt. 1914, B., bls. 290).

Svo mælti hann, og það var rjett og mjög skynsamlegt. Þessi hv. þm. var nú einmitt sá sami, sem nú flytur frv. um afnám þessa embættis, hv. þm. N.- Ísf. (S. St.).