13.03.1922
Neðri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (1397)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Þorleifur Guðmundsson:

Jeg heyrði það, að hv. frsm. þessa máls (S. St.) lýsti yfir því, fyrir hönd meiri hl. sparnaðarnefndar, að hann væri meðmæltur því, að hv. þm. Dala. (B. J.) yrði veittur einhver styrkur á fjárlögunum, ef þetta grískudócentsembætti hans yrði lagt niður. Jeg stend því upp til að lýsa yfir því, að jeg er eindregið á móti þessu. Jeg álít, að við höfum ekkert leyfi til þess að veita vel vinnufærum mönnum styrk, þótt embætti þeirra sje lagt niður, ef við á annað borð höfum rjett til að leggja embættið niður, því að það verðum við vendilega að athuga, að þann styrk, sem við veitum einum manni þannig, fyrir ekki neitt, tökum við úr buddum annara manna. Það er talað um þetta hjer með miklum fjálgleik, að manni þessum sje kastað út á gaddinn, og hart sje og ranglátt að taka þannig af honum embættið. En jeg vil nú spyrja: Er það hart að taka alóþarft embætti af vel vinnufærum manni? Jeg álít, að við sjeum menn að meiri, ef við skerum niður slík embætti. Enda er alþjóð manna á þessu máli. Úr öllum hreppum og hjeruðum landshornanna á milli erum við eggjaðir lögeggjan til atlögu gegn öllum óþörfum embættum og bitlingum. Jeg skal geta þess, að þetta er ekki frá minni hálfu nein persónuleg árás á þennan heiðursmann, sem hjer er um að ræða, eins og hæstv. forsrh. (S. E.) virtist vera hræddur um, en jeg vil ekki láta hann fá túskilding í styrk, ef embætti hans verður lagt niður. Og það er beinlínis af þeirri ástæðu, að jeg vil ekki gera svo lítið úr honum, því að við, sem hjer erum inni, höfum ekki þurft að sjá hann eða heyra nema stutta stund til þess, að okkur yrði það fullljóst, að hann lítur sjálfur svo á, sem hann sje meira en meðalmaður og fær í flestan sjó. Og vil jeg því ekki ætla honum, að hann sje ekki matvinnungur í raun og veru og geti ekki dregið fram lífið án góðgerðastyrks.

Hæstv. forsrh. (S. E.) er auðvitað á móti þessu, af því að hann er góðhjartað göfugmenni og vill ekki, að þessi heiðursmaður missi nokkurs í af launum sínum. Og þetta er ekki nema mannlegt. En því er ver, að þetta er ekki vel eðlilegt eftir „program“-ræðu hans hjer á dögunum, þar sem hann sagði, að embættabákn þessa lands væri mikið, og vildi minka það og breyta. En jafnskjótt og till. kemur fram um það, að leggja niður óþarfasta embættið á landinu, þá legst hann eindregið á móti því. Jeg verð að segja, að þetta spáir ekki góðu. Jeg veit það, að alþýða þessa lands er þess albúin, að gerast þræll sannrar menningar og leggja mikið í sölurnar hennar vegna, en hitt finnur hún fullvel, að hún er hvorki fædd nje sköpuð til þess eingöngu, að safna hunangi handa höfðingjunum. Hún veit það, að til eru embætti, sem stofnuð eru sem pólitískur bitlingur handa gæðingum stjórnarinnar, sem laun fyrir traust fylgi. Og hún veit það, að þetta embætti er eitt af þeim, sem þannig er undir komið. Og því ber oss skylda til að ala ekki á ósómanum, heldur leggja embættið tafarlaust niður.