21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í C-deild Alþingistíðinda. (1411)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Pjetur Þórðarson:

Það ber tvent til þess, að jeg hefi leyft mjer að flytja brtt. á þskj. 94, sem fer fram á að fresta afnámi þessa embættis, meðan maður sá, sem nú gegnir embættinu, situr í því. Fyrri ástæðan fyrir því, að jeg ber fram þessa brtt., er sú, að jeg hefi heyrt það á hv. frsm. þessa máls (S. St.), að honum fyndist sjálfsagt, að þessi embættismaður yrði ekki látinn fara úr embættinu án þess að honum yrðu veittar sómasamlegar bætur fyrir rýrnun launa hans, og munu margir sparnaðarmenn geta fallist á þessa skoðun hv. frsm. (S. St.); með öðrum orðum, fjársparnaðurinn af niðurlagningu þessa embættis yrði hverfandi lítill. — Önnur ástæða mín er sú, að jeg hefi heyrt það á mörgum mentamönnum, og þá sjerstaklega á nemendum háskólans, að þessi maður, sem hjer um ræðir, væri vel fallin til þessa embættis; kensla hans væri góð og kæmi að miklum notum. En þó svo væri nú, að þetta embætti sje ekki bráðnauðsynlegt, þá er það öllum vitanlegt, að þessi maður er vel settur þar sem hann er og notast má að vísindastarfsemi hans, og margir álíta, að í þessu embætti sje hann best settur af öllum störfum, sem hann hefir unnið. Þess vegna tel jeg ekki rjett, að embætti þetta sje tekið af honum, og því bar jeg fram mína brtt, en nú hefir komið fram önnur brtt, á þskj. 95, sem fer í sömu átt, en jeg álít hana fult svo heppilega sem mína till., og tek jeg því mína aftur, en vænti þess hins vegar, að brtt. á þskj. 95 verði samþ.