21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í C-deild Alþingistíðinda. (1423)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Jón Baldvinsson:

Það voru orð hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.), sem jeg hafði í huga, er jeg samdi brtt. mína. Þó að hv. frsm (S. St.) hefði lofað, að háskólakennarinn skyldi fá einhver laun, þá er ekki hægt að binda atkv. sitt við það. Jeg get samþ. frv. þetta, ef trygging er fengin fyrir því, að maðurinn fái laun í nokkur ár, en ómögulegt að byggja neitt á loforðum, þegar nefndarmennirnir eru jafnsundurleitir og raun hefir á orðið.