30.03.1922
Neðri deild: 36. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í C-deild Alþingistíðinda. (1426)

44. mál, afnám kennarastóls í klassískum fræðum

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Eins og hæstv. forseti tók fram, skildist hv. deild svo við þetta frv. við 2. umr., að það er „uden Hoved og Hale“, eins og Danskurinn segir. En þrátt fyrir það hefir þessi höfuðlausi heiðursmaður lifað við bestu heilsu síðan og ætti hann þá ekki síður að vera frískur og fjörugur, þegar búið er að gefa frv. þá læknisdóma, sem sparnaðarnefndin hefir hugað því, á þskj. 145.

Annars vil jeg ekki endurtaka það, sem jeg hefi áður sagt um þetta frv., heldur sný mjer beint að brtt. sparnaðarnefndar. Ef sú till. nær fram að ganga, þá þarf ekki hjer eftir að segja, að þessum heiðursmanni sje kastað út á gaddinn, eins og sagt hefir verið hjer í deildinni sjálfsagt 30–40 sinnum. Hjer eru honum ákveðin sómasamleg eftirlaun og full laun til næstu ársloka. Þessi till. slær því til jarðar öll ummæli um, að þessum heiðursmanni sje kastað út á gaddinn.

Því er haldið óspart fram, að lítill sparnaður sje að þessu frv. Get jeg vel trúað því, að þeim hv. þm. þyki hann lítill, sem að eins telja fje landssjóðs í tugum þúsunda. Þó mun með þessu frv. sparast 1500 kr. á ári, og auk þess dýrtíðaruppbót, sem nú er um 2900 kr. En eftir fá ár yrði hann kominn á full laun, og sparast þá þess meira.

Um nauðsyn þessa embættis segir einn hvítt, en annar svart, og má altaf um það deila. En jeg vil þó minna á það, að þegar háskólinn var stofnaður, þótti ekki nauðsyn á þessu embætti, og síðar, þegar embættið var stofnað, var það ekki gert af bráðri nauðsyn, heldur var það metnaðarmál fyrir prestastjettina. Þegar því nauðsyn þessa embættis er borin saman við nauðsyn þess að spara fje ríkissjóðs á þessum erfiðu tímum, þá verður hún áreiðanlega minni.

Í þingbyrjun var hjer sterk hreyfing meðal hv. þm. um að leggja niður öll þau embætti sem hægt væri, landinu að skaðlausu, og ástæðurnar til þessa komu hv. þm. með frá kjósendum sínum. Það er áreiðanlegt, að sparnaðarhugsunin hefir aldrei verið ríkari hjá þjóðinni en einmitt nú. Bendir alt í þá átt, að hún finni betur, hvar skórinn kreppir að en hv. þm., ef dæma skal eftir því, hversu þeir hafa snúist við till. sparnaðarnefndar.

Að endingu vil jeg geta þess, að nefndinni þótti ekki ástæða til að taka upp í brtt. 2. gr. frv., sem feld var við 2. umr. Leiðir það beint af 1. gr. frv., að þau lög falla úr gildi.

Skal jeg svo ekki þreyta háttv. þm. meira. Málið er þegar þaulrætt í deildinni og ekki líkur til, að hv. þm. breyti atkvæði sínu við þær umræður, sem fram kunna að fara um málið úr þessu.