27.03.1922
Neðri deild: 33. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
1. mál, fjárlög 1923
Atvinnumálaráðherra (Kl.J.):
Það hafa komið fram nokkrar brtt., sem jeg vildi leyfa mjer að minnast stuttlega á. Þá vildi jeg fyrst geta um 1. brtt. á þskj. 157, frá háttv. 3. þm. Reykv. (J.Þ.), um að fella burtu bifreiðaskatt. Sami háttv. þm. hreyfði því við 2. umr., að þessi skattur ætti að falla burt af fjárlögunum eða vera færður einnig á gjaldahlið ella. Jeg er honum samdóma um þetta. Jeg tel það órjett að þessi skattur standi aðeins tekjumegin, því við það kemur 30000 kr. tekjuhalli.
Samkvæmt lögunum um bifreiðaskatt á með þessum skatti að stofna sjerstakan sjóð í alveg vissum tilgangi, á líkan hátt og Ræktunarsjóð Íslands. Hann á því ekki heima í fjárlögunum yfir höfuð; ætti hann þar heima, þá heyrði það undir þingið, hvernig með hann væri farið; en samkvæmt lögunum á að verja honum eftir tillögum vegamálastjóra. Jeg verð þess vegna að mæla með því, að þessi skattur verði feldur burt af tekjuhlið fjárlaganna.
Því hefir verið haldið fram, að bifreiðaskatturinn sje einnig tilfærður útgjaldamegin; hann komi nefnilega fram í viðhaldi flutningabrauta; en þetta er alls ekki rjett. Jeg hefi spurt vegamálastjóra um þetta; tjáði hann mjer, að þetta væri ekki rjett. Sagði hann og, að upphæðir þær, sem þar eru veittar, gerðu alls ekki meira en hrökkva til fyrir nauðsynlegu viðhaldi, en ekki til þess að gera slitlög á akvegum. Vegamálastjóri taldi því rjettast að fella þennan skatt burt af fjárlögunum.
Háttv. meiri hluti sparnaðarnefndar hefir komið fram með brtt. á þskj. 153, V. lið, um að fella niður styrkveitingu til fjallvega. Jeg hafði síst búist við því, að sparnaðarnefnd mundi ráðast á þennan lið, sem af flestum er talinn allra nauðsynlegasti samgöngumálaliðurinn. Mjer kom undarlega fyrir sjónir, að hv. þm. N.-Ísf. (S.St.), sem er kunnugur því frá sínu bygðarlagi, hve fjallvegirnir eru illir yfirferðar, skyldi vilja klípa af þessari upphæð. Jeg vænti þess, að háttv. deild samþykki þetta ekki.
Næsta brtt. er frá háttv. þm. Ísaf. (J.A.J.). Hún fer fram á það að lækka styrkinn til strandferða um 100000 krónur. Vill hann fyrir þetta fje láta byggja sjúkrahús á Ísafirði. Háttv. frsm. (B.J.) og hæstv. forsrh. (S.E.) hafa báðir bent á, að ekki væri ráðlegt að byggja þetta sjúkrahús nú sem stendur, og jeg verð eindregið að mæla móti því, að dregið sje af þessum styrk til strandferða í þessu skyni. Háttv. þm. (J.A.J.) verður að finna önnur ráð. Það væri sanni nær að taka þessa upphæð af styrknum til bátaferða á flóum og fjörðum, en háttv. þm. hefir ef til vill haldið, að það kæmi að einhverju leyti niður á bátsferðunum við Ísafjarðardjúp, og þess vegna ekki viljað leggja það til.
Þá er 7. brtt. við 13. gr. D. III. 17, frá fjvn., um að fella niður styrkveitingu til loftskeytastöðvar á Síðu. Það er bein afleiðing af atkvgr. við 2. umr. En jeg vildi leyfa mjer í þessu sambandi að minnast á brtt. frá mjer á þskj. 157. Eins og háttv. deild er kunnugt, var felt við 2. umræðu að leggja síma á næsta ári. Af því að hjer var um verulegan sparnað að ræða, fjelst jeg á að þetta biði, einkum þegar þess var og gætt, að landið er nú orðið svo símalagt, að við það virðist mega una, eða í öllu falli svo, að hætta mætti við þær eitt ár.
Síðan hefi jeg talað við landssímastjóra. Þótti honum næsta óheppilegt, að svo var með farið, og hefir hann sent mjer allmikið skjal, þess efnis og innihalds, að honum veitist heimild til að leggja síma á komandi ári, ef fjárhagur ríkisins þyldi. Fyrir þá sök kom jeg fram með brtt. á þskj. 157. Í þessu skjali gefur landssímastjórinn þær upplýsingar, að leggja megi ýmsa síma með talsvert minni tilkostnaði en áætlað var. Jeg skal t. d. nefna símann frá Hesteyri til Aðalvíkur. Þennan síma heldur hann að megi leggja nú fyrir 11000 krónur; upphaflega var áætlað að hann mundi kosta 32000 kr.; síðar var áætlað að hann kostaði 25 þúsund. Þetta rökstyður landssímastjórinn á þann hátt, að síminn sje aðeins 10–20 kílómetra langur, og þar sem hann verði ekki í sambandi við neinn annan síma, megi nota í hann einfaldan stálvír, sem hefir mikið burðarmagn, en lítið rafmagn. Þennan síma vill nú landsímastjórinn fá sem fyrst og telur að hann verði ekki einungis til nota fyrir hjeraðsbúa, heldur líka til mikilla nota fyrir fiskiflotann, sem hefst mikið við í Aðalvíkinni. Hann heldur og, að hann muni bera sig, því hann áætlar að hann gefi 100 króna tekjur á mánuði.
Jeg mintist áðan á loftskeytastöðina á Síðu, og vildi í þessu sambandi taka það fram, að í sumar sem leið var reist á Hesteyri lítil loftskeytastöð; til þess að hún gæti náð sambandi var sett upp önnur samskonar á Ísafirði, en sú stöð hefir ekki getað starfað sökum óreglu á rafstöð bæjarins. Stöðin á Hesteyri reyndi því að ná samb. við loftskeytastöðina í Rvík og tókst það svo vel, að hún hefir haft sambandið um 2–3 mánaða skeið. Þegar sú reynsla var fengin, varð loftskeytastöðin á Ísafirði gagnslaus. Landssímastjóri vill því láta flytja hana austur á Síðu, og telur að kostnaðurinn við það verði ekki meiri en nokkur þúsund krónur. Þessi loftskeytastöð gæti fullnægt Skaftfellingum þangað til símalína verður lögð sunnanlands.
Jeg hefi áður skýrt frá því, að stjórnin lítur svo á, að símalínan frá Búðardal að Króksfjarðarnesi ætti að ganga fyrir öðrum. Tilgangi mínum með brtt. væri þá náð, ef stjórnin fengi heimild til að leggja þann síma og 11000 krónur væru veittar til að leggja símann frá Hesteyri til Aðalvíkur og 5000 krónur til þess að flytja loftskeytastöðina frá Ísafirði og setja hana niður austur á Síðu. Jeg vona, að háttv. fjvn. hallist að því, og af því að jeg hefi ástæðu til að halda, að háttv. fjvn. gefi þar að lútandi yfirlýsingu, get jeg tekið aftur brtt. mína á þskj. 157.
Háttv. 1. þm. G.-K. (E.Þ.) hefir komið fram með brtt. um að reisa vita á Vatnsnesi. En það er nú ákveðið, að allar vitabyggingar skuli bíða, og fæ jeg ekki sjeð, að þessi viti sje nauðsynlegri en aðrir, sem vitamálastjóri hefir lagt til, að yrðu bygðir, og þó verða að bíða.
Þá hefir komið fram brtt. frá hv. meiri hluta sparnaðarnefndar um að fella niður styrkinn til iðnfræðslu. Það lítur svo út, að þessari háttv. nefnd sje mjög ant um að fækka skólum. Um daginn var ráðist á verslunarskólana, nú er röðin komin að iðnskólanum. Jeg get ekki skilið, hverjar ástæður þessi háttv. nefnd getur haft til þess að vilja fella þessar stofnanir. Jeg held, að það væri mikil afturför, ef styrkurinn fjelli niður, því með honum mundu auðvitað falla iðnskólarnir hjer og annarsstaðar, og það er ekki auðvelt að reisa þá aftur, ef þeir hafa verið lagðir niður. Vona jeg því, að þessi brtt. verði feld. En jeg skal geta þess um leið, að jeg vil ennþá síður, að klipnar verði 500 krónur af styrk verslunarskólans, fyrst ekki tókst að fella hann við 2. umr. (P.O.: Það var fjvn., sem lagði til að afnuminn yrði styrkurinn til verslunarskólans). Það er rjett, og vil jeg biðja háttv. sparnaðarnefnd að afsaka, ef jeg hefi kent henni um meira en hún átti skilið.
Fleira var víst ekki, sem jeg vildi beina máli mínu að.