24.03.1922
Neðri deild: 31. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í C-deild Alþingistíðinda. (1442)

65. mál, sameining Árnessýslu og Rangárvallasýslu

Forseti (B. Sv.):

Jeg vil geta þess, að mjer hefir borist svo hljóðandi rökstudd dagskrá frá 1. þm. Rang. (Gunn. S.):

Í trausti þess, að landsstjórnin athugi, hversu hentast megi koma fyrir nýrri skipun á lögsagnarumdæmum landsins og beri fram tillögu um það á næsta Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Og er þessi rökstudda dagskrá þá einnig til umr.