24.03.1922
Neðri deild: 31. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í C-deild Alþingistíðinda. (1444)

65. mál, sameining Árnessýslu og Rangárvallasýslu

Bjarni Jónsson:

Mjer finst vel við eiga, eftir jafnsnjalla ræðu, að segja fáein borgaraleg orð.

Ætli hv. Alþingi að ráðast í að breyta dómsmálum landsins, þá verður að athuga alt kerfið í heild, en ekki að taka út úr því einstök atriði.

Jeg býst nú við, að menn hafi fest hugann við hið forna skipulag, að koma upp kviðdómi, einum dómara í hverjum fjórðungi og fimta í Reykjavík. Þá myndu sýslumenn verða afnumdir.

En þetta þarf alt að athuga og reikna út, hvort ódýrara muni að fela öðrum mönnum umboðsstörfin, og verður þetta að gerast áður en sýslumönnum er fækkað. Það er ekki að búast við, að nokkrir menn, hlaðnir störfum, á stuttum þingtíma, geti gert þær till. um þetta mál, sem Alþingi verður svo að byggja á. Því sje jeg ekki annað ráð betra, en skjóta þessu til stjórnarinnar, til frekari rannsóknar og undirbúnings, enda hefir hún einmitt heitið því, að rannsaka embættaskipun landsins.

Jeg ætla mjer ekki að dæma störf sýslumanna eftir landabrjefi. Jeg treysti mjer ekki til að segja um, hvar erfiðast sje að ferðast, og eru þó eflaust margir ókunnugri mjer.

Jeg geri það að tillögu minni, að máli þessu verði vísað til stjórnarinnar. Vænti jeg, að hv. sparnaðarnefnd ljái þessari sparnaðartill. minni fylgi, úr því að hún gengur svo langt í sparnaði sínum, að hún vill spara með því að fella niður kennaraembætti eins manns við háskólann, sem bundið er við nafn hans, þó hann gæti fengið sjer dæmd full laun fyrir hæstarjetti, ef hann færi í mál. En með því að vísa þessu máli núna til stjórnarinnar, sparast frekari umr. um þetta mál, þar með tími þingsins, þar af leiðandi kaup þm., skrifara og annara starfsmanna, og margt fleira, sem jeg efast ekki um, að sparnaðarnefndin geti gert sjer í hugarlund. Vænti jeg því, að þessi till. mín verði samþykt.