15.02.1922
Neðri deild: 1. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

Kosning forseta og skrifara

Kosning forseta og skrifara.

Var því næst gengið til kosninga á forseta deildarinnar.

Kosningu hlaut

Benedikt Sveinsson, þm. N.-Þ., með 16 atkv.

Þórarinn Jónsson fekk 3 atkv., Sigurður Stefánsson 1 atkv., en 5 seðlar voru auðir.

Hinn nýkosni forseti tók við fundarstjórn og ljet fara fram kosningu fyrri varaforseta deildarinnar, og var kosinn

Þorleifur Jónsson, þm. A.-Sk., með 12 atkv.

Sigurður Stefánsson fekk 10 atkv., en 3 seðlar voru auðir.

Þessu næst var kosinn 2. varaforseti deildarinnar. Kosninguna varð að þrítaka.

Fyrsta kosning fór á þá leið, að Bjarni Jónsson hlaut 8 atkv., Magnús Jónsson 8 atkv., Sigurður Stefánsson 2 atkv., en 7 seðlar voru auðir. Þá mælti