27.03.1922
Neðri deild: 33. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (151)
1. mál, fjárlög 1923
Magnús Guðmundsson:
Mjer sýnist nú enn svo þunnskipað í fundarsalnum, að jeg tel vafasamt, að fundarfært geti heitið. Það gerir mjer að vísu ekki mikið til, því að jeg ætla aðeins lítilsháttar að drepa á eitt eða tvö atriði, en vonandi láta háttv. þdm. sig ekki vanta lengi, er um svo mikilvægt mál er að ræða sem fjárlögin.
Það var sjerstaklega brtt. háttv. 3. þm. Reykv. (J.Þ.), sem jeg vildi minnast á. Brtt. fer fram á að fella niður tölulið 19 í 2. grein fjárlagafrv., sem sje bifreiðaskatt, sem áætlað er að nemi 30000 kr.
Jeg var satt að segja hissa á, að þessi brtt. skyldi koma frá háttv. 3. þm. Reykv. Mjer hefir skilist svo, að honum þætti einmitt of lítið gert að því að taka upp í tekjuhliðina tekjur af ríkisrekstrarfyrirtækjum, eða að minsta kosti talaði hann í þá átt hjer fyrir skemstu.
Hæstv. atvrh. (Kl.J.) mælti með brtt. þessari. Kvaðst hann hafa talað við vegamálastjóra um þetta mál, og hefði hann verið því samþykkur að tilfæra bifreiðaskattinn ekki tekjumegin. Þetta kemur mjer nokkuð undarlega fyrir, ef meiningin með því er sú, að ekki sje tekið tillit til þessa skatts gjaldamegin, því að það var einmitt tilætlun mín, að skatti þessum skyldi verja til viðhalds vegum, og er hann því gjaldamegin áætlaður í því fje, sem til viðhalds er veitt. Jeg hafði líka minst á þetta við vegamálastjóra og hjelt jeg, að hann væri mjer samþykkur í því, að bifreiðaskattinn mætti nota til að greiða nauðsynlegan kostnað við slitlag vega, svo langt sem hann nær. En auðvitað vill vegamálastjóri fá sem mest fje til veganna. Því er nú svo háttað, að mikið hefir verið gert hjer við flutningabrautirnar síðastliðin ár í tilefni af konungskomunni, og því er líklegt, að minna fje þurfi að verja til þess árið 1923. Jeg hlýt því að álíta, að hið áætlaða fje nægi til viðhaldsins. Jeg get ekki sjeð annað en 5. grein bifreiðaskattslaganna sje þessari aðferð ekki til hindrunar, því að yfirleitt ræður vegamálastjóri miklu um viðhald allra vega landsins. Mjer finst því fullkomlega eðlilegt, að tekjur þær, sem eiga að fara til endurbóta á vegum, sjeu allar taldar tekjumegin í fjárlögunum.
Hæstv. atvrh. (Kl.J.) talaði um hina fyrirhuguðu loftskeytastöð austur á Síðu. Jeg tel sjálfsagt, að stjórninni sje heimilt að flytja þangað stöðina á Ísafirði, ef stjórnin sjer að hún gerir miklu meira gagn þar eystra. Það er bæði sparnaður og hagkvæmara að hafa stöðina þar, sem hún getur komið að notum.
Um brtt. háttv. 1. þm. Reykv. (Jak.M.) um útflutningsgjaldið þarf ekki að ræða, fyrst hún er tekin aftur. Jeg vona, að deildin samþykki að fella gjald þetta niður á sínum tíma, þegar fjárhagur landsins eða ríkissjóðs leyfir. Enda var það hugsun síðasta þings með þessum lögum. Var því óþarft af háttv. þm. (Jak.M.) að fara hörðum orðum um þetta ákvæði þingsins í fyrra.