18.02.1922
Neðri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (1525)

5. mál, fræðsla barna

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg þarf ekki að fjölyrða um það, hvers vegna frv. þetta er fram komið. Það er á vitund allra hv. þdm. Hið háa Alþingi hefir svo fyrirskipað, að stjórnin legði fyrir þetta þing breytingar á lögum um barnafræðslu.

Þetta frv., sem hjer er um að ræða, er ekki mjög frábrugðið í aðalatriðunum þeirri skipun um barnafræðslu, sem nú er. Grundvöllurinn er hinn sami og kröfurnar líkar. Að vísu er bætt lítilsháttar við námsgreinar, söng og teikning, og lítilsháttar til handanna.

Ný ákvæði eru um heimavistarskóla: a) Börnin flokkuð, og hver flokkur sje 12 vikur á ári í þeim. b) Heimilað, að skólaskyldualdur þeirra færist til 12–14 ára aldurs.

Við farskóla er ákveðin að minsta kosti 12 vikna fræðsla á vetri fyrir hvert barn (áður 8 vikur).

Eitt er það í frv. þessu, sem jeg get búist við að ýmsum þyki varhugavert í fljótu bragði, sem sje ákvæðið um, að fræðsluhjeruðum sje heimilt að halda ekki uppi farskóla á almannakostnað, ef skólanefnd getur sjeð öllum börnum fræðsluhjeraðsins fyrir nægilegri kenslu á annan hátt. Jeg fyrir mitt leyti verð að líta svo á, að ákvæðið sje einmitt skynsamlegt og heppilegt. Það er betra, að heimild sje til þess í lögum að sleppa opinberri kenslu (farkenslu), þar sem sjerstakir örðugleikar eru á henni, eða svo stendur á í sveit, að hennar er síður þörf en alment gerist, heldur en sveitirnar svo að segja neyðist til að gera slíkar ráðstafanir í trássi við lög.

Krafist er prófs yfir börnum 8–10 ára (áður 10–14 ára). Kostnaður við kenslu öreiga barna telst ekki sveitarstyrkur, Styrkur, sem veittur hefir verið til skólabyggingar, er afturkræfur, ef hætt verður að nota húsið til skólahalds. Þetta finst mjer að öllu leyti sanngjarnt og vænti jeg, að háttv. þdm. fallist á það.

Nefndarmenn, ráðunautar stjórnarinnar, sem frv. hafa samið, leggja mikla áherslu á, að skipun skólanefnda breytist frá því sem nú er, þannig, að hreppsnefndin kjósi einn mann, foreldrar barnanna tvo menn og yfirstjórn fræðslumála aðra tvo. Það fyrirkomulag, sem nú er um skipun skólanefnda, hefir ekki þótt gefast vel. Jeg tel óefað, að með frv. sje betur fyrir þessu sjeð.

Þá er eitt atriði, sem jeg get búist við að hv. þm. þyki varhugavert og vilji kannske ekki fallast á það, af því að þar er gert ráð fyrir dálitlum kostnaði, frá því sem nú er. Frv. fer fram á lítilsháttar borgun til formanns skólanefndar, líklega sem svarar alt að 100 krónum í meðalhreppi. Vitanlega er þetta ekki stórvægilegt og ætti ekki að vaxa mönnum í augum. Starf formannsins er oft umfangsmikið, og ósanngjarnt að ætlast til þess, að hann leggi það á sig þóknunarlaust. Þar að auki er þess að gæta, að nú er greidd þóknun, meiri eða minni, fyrir svo að segja öll þau störf, sem unnin eru í þágu þess opinbera, og þetta starf er ekki síður launavert heldur en ýmislegt annað.

Þá er ákvæði um skólaráð til aðstoðar við framkvæmd þessara mála: Fræðslumálastjóri, maður, skipaður af kenslumálaráðherra, og hinn þriðji, kosinn af föstum barnakennurum. Enn er gert ráð fyrir, að fje sje veitt til kenslueftirlits.

Frekar þykist jeg ekki þurfa að reifa þetta mál. Jeg hefi ekki viljað gera neinar breytingar til muna á frv. Það er samið með ráði margra mætra manna, og helst þeirra, er mest um barnafræðslu fjalla með þjóð vorri, og þær breytingar einar gerðar frá því, sem nú er, sem ætla má að sjeu til bóta.

Þá vil jeg minnast á eina breytingu, sem stjórnin hefir gert, en það er að hafa prestana fyrir prófdómara, þar sem það er hægt.

Mjer finst ekki nema sanngjarnt, að prestarnir inni þessa kvöð af hendi, og það endurgjaldslaust. Það hefir þegar verið ljett svo mjög störfum af prestum, sem áður áttu þeir að inna af hendi, einmitt við fræðslu barna.

Jeg geri ráð fyrir, að frv. þessu verði vísað til mentmn. að aflokinni þessari umr., og vænti jeg þess, að hv. nefnd geti fallist á frv.