18.02.1922
Neðri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (1529)
12. mál, vatnalög
Fjármálaráðherra (M. G.):
Alllöngu áður en atvinnumálaráðherra (P. J.) fjell frá var það ákveðið að leggja fossamálin enn á ný fyrir Alþingi, en til þess að spara sjer útgjöld við prentun þessa mikla lagabálks var ákveðið að vísa aðeins í þessu frv. til textans í frv. því, sem lagt var fyrir Alþingi í fyrra. Ef nú svo fer, að enn komist þessi mál ekki áleiðis gegnum þingið, er því litlu spilt í kostnaði, en vera má, að málið fái nokkra athugun, þótt ekki sje víst, að það verði afgreitt sem lög, eða jafnvel ekki úr þessari háttv. deild.
Jeg tel, að þetta þing eigi að vera stutt, og jeg álít því eigi rjett að lengja þingið vegna þessa máls; tel í raun og veru, að það þoli bið. Annars verð jeg að játa það, að því miður verður mjer erfitt að svara til þessa máls, sem jeg hefi orðið að taka að mjer, nærri fyrirvaralaust, vegna dauða atvinnumálaráðherra, en jeg hugga mig við það, að áður en til verulegra kasta kemur um málið muni annar kominn í hans stað.
Eins og kunnugt er, komst mál þetta það áleiðis á síðasta þingi, að nefndarálit kom frá samvinnunefnd beggja deilda, en nefndin klofnaði, og komu báðir partar með ýmsar brtt. Í ástæðum frv. er lýst afstöðu stjórnarinnar til þessara brtt., og vísa jeg til þess.
Hingað til hefir jafnan verið kosin sjerstök nefnd í þetta mikla mál, og geri jeg ráð fyrir, að svo verði enn, og legg jeg því til, að máli þessu verði vísað til 7 manna nefndar, er til þess sje kosin, að lokinni þessari umr.