01.03.1922
Neðri deild: 11. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (1539)
14. mál, útflutningsgjald af síld o.fl.
Frsm. (Magnús Kristjánsson):
Jeg hefi vitanlega ekkert á móti því, sem hæstv. fjrh. (M. G.) leggur til um meðferð þessa frv. Jeg man ekki til, að sú aðferð hafi áður verið notuð hjer, en þó getur verið, að svo sje.
Hitt þótti mjer næsta undarlegt, sem hann sagði um endurgreiðslu tollsins. Áttum við nokkurn orðastað um það á síðasta þingi, og tel jeg óþarft að endurtaka það aftur nú. Sú mótbára, að þetta sje ekki framkvæmanlegt, held jeg að sje fyrirsláttur einn og sagt út í bláinn. Jeg er sannfærður um, að ákvörðun kostnaðarverðsins er auðvelt verk, ef góður vilji er með, og sýnist mjer svo, sem nægar tryggingar sjeu í lögunum. Jeg get skilið það, að hæstv. fjrh. (M. G.) vilji fá sem mest fje í landssjóðinn, en jeg hjelt, að hann gæti látið sannfærast um, að þessi atvinnuvegur þolir ekki slíkar álögur. Enda býst jeg nú við, að því verði hreyft hjer að færa þennan toll niður, og væri æskilegt, að fært yrði að gera breytingu í þá átt.
Annars sje jeg ekki, að neitt þýði að fjölyrða um málið. Það liggur hvort sem er ekki fyrir í þeirri mynd, að þessu atriði verði neitt breytt, en jeg geri ráð fyrir, að síðar á þessu þingi gefist kostur á að ræða um tollupphæðina.