18.02.1922
Neðri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í C-deild Alþingistíðinda. (1543)
16. mál, lærði skólinn í Reykjasvík
Forsætisráðherra (J. M.):
Frv. þetta er lagt fram óbreytt frá síðasta þingi og í þeim búningi, sem hjer sjest, og þótti ráðuneytinu það rjett, því að kostnaður við endurprentun þess hefði orðið allmikill, þótt ástæða hefði máske verið til að gera einhverjar breytingar nú við frv.
Vona jeg, að frv. verði tekið upp á því stigi, sem skilið var við það í fyrra.
Annars þætti mjer mjög gott, ef hv. nefnd vildi eiga tal við mig um eitt atriði frv., sem snertir það fjárhagslega.