27.03.1922
Neðri deild: 33. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
1. mál, fjárlög 1923
Forsætisráðherra (S. E.):
Það er rjett eins og háttv. þm. Ak. (M.K.) drap á, að það er óþarfi af háttv. sparnaðarnefnd að ræða fjárhag ríkisins á undan öllum till. sínum. Þó að allar till. næðu fram að ganga, kæmi það lítið við fjárhagnum. Þær eru ekki veigameiri en það.
Fyrst verða fyrir mjer till. háttv. sparnaðarnefndar um húsaleigu og námsstyrk. Jeg vil mæla með því, að fyrirkomulagið verði eins og það er nú, því nú er hægt að gera sem jafnast upp á milli allra, sem þarfnast styrksins. En ef till. þessi verður samþykt, þá er ekki hægt að taka til greina verulega þörf fátækra manna, sem eru búsettir hjer í bænum. En menn geta verið búsettir hjer, þó að þeir eigi hjer engan að og standi á engan hátt betur að vígi en utanbæjarmenn. Það er ekki rjett að útiloka þessa menn, en hinsvegar munu utanbæjarmenn yfirleitt sitja fyrir, eða svo hefir það verið að minsta kosti, en það er ekki rjett að útiloka hina.
Þá vil jeg taka það fram viðvíkjandi ræðu háttv. þm. Barð. (H.K.) um utanfararstyrk lækna, að jeg teldi mjög óheppilegt, ef hann fjelli niður. Læknunum er bráðnauðsynlegt að geta fylgst með öllum nýjungum í vísindum sínum, og þegar þess er gætt, að hjer vantar tilfinnanlega sjúkrahús, þar sem læknarnir gætu aflað sjer þekkingar, megum við síst spara á þessum lið, og jeg tel því fje, sem til þessa er varið, vel varið.
Jeg verð að játa það, að mjer þykir það einkennilegt, að háttv. frsm. sparnaðarnefndar (S. St.) reynir altaf að láta líta svo út sem stjórnin vilji ekki spara, og byggir það á því, að hún getur ekki aðhylst till. eins og þessa hjer og aðrar líkar. Og einkum er þetta einkennilegt, þar sem fráfarin stjórn lagði hið sama til um þessi atriði; en háttv. þm. (S.St.) þreytist ekki á að lofa hana fyrir sparnað. Þetta er einkennilegt rjettlæti, en það fyrirgefst hv. þm. vegna þess, hve erfitt hann á með að líta stjórnina rjettu auga. Jeg veit það, að á meðan það þykir kostur að vera talinn sparnaðarmaður, mun háttv. þm. aldrei festa það nafn við mig, hversu mjög sem jeg ætti það skili. Annars er þetta ekki í fyrsta skifti, sem jeg sje háttv. þm. (S.St.) þeysa á sparnaðarfáknum hjer í deildinni. Sú ótemja hefir sjest hjer ausa og prjóna þing eftir þing. En margir eru kallaðir, en fáir útvaldir. Jeg hefi athugað andlit háttv. þm. (S.St.) þegar hann hefir hleypt sparnaðarfáknum, og hefi jeg sjaldan sjeð sólskin þar. Svo djúp hefir alvaran verið. En þegar eyðslusemi er hjer á dagskrá, sem snertir hans eigið kjördæmi, uppljómast andlit hans. Það mátti sjá þegar verið var að samþykkja Hesteyrarsímann. Það eru fáir svo útvaldir, að þeir haldi áfram að vera sparnaðarmenn, ef kjördæmi þeirra á í hlut.
Atvinnumálaráðherra (Kl.J.): Jeg held, að háttv. þm. Barð. (H. K.) hafi ekki heyrt vel til mín, því annars hefði hann ekki beint til mín spurningunni, sem hann bar upp áðan. Þegar jeg fjekk skilaboð háttv. nefndar viðvíkjandi Króksfjarðarsímanum, lýsti jeg því skýrt yfir, að jeg hefði fengið uppfylt aðallega það, sem jeg ætlaðist til með till. minni. Og þóttist jeg ekki hafa ástæðu til að ræða það frekar. Þetta held jeg að hafi farið fram hjá háttv. þm. (H.K.). En jeg vildi ganga feti framar. Jeg vildi taka Hesteyrarsímann og loftskeytastöðina á Síðu með, og því varð mjer tíðrætt um þessi tvö atriði, en um Króksfjarðarsímann hafði jeg enga ástæðu til að tala frekar. Vona jeg svo, að háttv. þm. Barð. (H. K.) sje ánægður með svörin.