25.02.1922
Neðri deild: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í C-deild Alþingistíðinda. (1551)
32. mál, aðflutningsbann á áfengi
Magnús Jónsson:
Orð hv. samþm. míns (J. B.) hafa gefið mjer ástæðu til að láta í ljós afstöðu mína á þessu stigi málsins. Mjer verður ekki með rjettu brugðið um ótrúmensku við þetta mál, því þótt jeg hafi ekki oft komið opinberlega fram því til stuðnings, þá hefir það jafnan verið á þann veg, að halda hlífiskildi yfir bannlögunum. Jeg er samdóma hv. samþm. mínum (J. B.) í því, að lög þessi hafi orðið þjóðinni heillarík. Þau eru auk þess, sem flest siðferðismál, sjerstakt metnaðarmál þjóðarinnar og einmitt það málið, sem nú á síðustu tímum hefir gert land vort einna kunnast meðal erlendra ríkja. Jeg yrði því, af þessum rökum, manna fúsastur til að taka utan um hálsinn á sjerhverri tilraun til að hnekkja gengi áfengisbannsins hjer á landi. En það er fjarri því, að nú standi þannig á. Það er hjer alls ekki að ræða um neina árás á bannlögin sem slík, og vjer megum með engu móti draga þau að óþörfu inn í þessar umræður. Það, sem hjer er um að ræða, er svar við kröfu Spánverja, og í því svari ríður á, að þm. standi saman, hvernig svo sem svarið verður. Það er auðsætt, að það svar getur orðið á marga vegu, en hvernig sem það verður, þá ættu menn að hafa eitt hugfast, að hjer getur aldrei orðið um að ræða neinn sigur fyrir andbanningastefnuna, þótt undan verði látið síga fyrir ofureflinu. Hjer má ekki koma fram bannmannamálstaður gegn andbanningamálstað, heldur á hjer að vera íslenskur málstaður gegn erlendri kúgun. Það, sem hjer ríður á, er því að rannsaka málið hitalaust og reyna að finna rjetta svarið. Og samkvæmt þeirri skoðun minni greiði jeg atkvæði með því, að málinu verði vísað til nefndar.