18.02.1922
Efri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í C-deild Alþingistíðinda. (1565)
7. mál, einkaleyfi
Fjármálaráðherra (M. G.):
Þetta frv. er gamall kunningi Alþingis, því að það lá bæði fyrir þinginu 1919 og 1920, en hefir þó aldrei komist lengra en að vera afgreitt frá þessar hv. deild. — í greinargerð frv. er sögð saga þess nánar, og tel jeg óþarft að rifja það upp hjer, en vísa til þess. Sömuleiðis vísa jeg til þess, sem sagt er í greinargerðinni um breytingu á frv. frá því, sem áður var.
Annars verð jeg að vera svo hreinskilinn að segja, að jeg er í nokkrum efa um, hvort rjett sje að setja hjer lög um þetta efni í því formi, sem hjer er ráðgert, og hefði jeg verið einn um, held jeg, að jeg hefði varla lagt þetta frv. fyrir Alþingi, en hinum nýlátna starfsbróður mínum var þetta frv. töluvert áhugamál, og taldi hann nauðsyn á lögum um þetta efni. Og eins og frv. er hagað, get jeg ekki sjeð, að varhugavert sje að samþykkja það.
En það, sem fyrir mjer vakir, er það, hvort ekki mundi vera eins heppilegt fyrir oss að taka upp svipaða einkaleyfislöggjöf og tíðkast mun í Suður- Evrópu og gengur út á það, að veita ætíð einkaleyfi, þegar um er beðið, og láta svo þann, sem telur rjett sinn fyrir borð borinn með nýju einkaleyfi, vera skyldan til, ef hann vill halda rjetti sínum fram, að leita þar um úrskurðar dómstólanna. Jeg veit ekki betur en t. d. Frakkland hafi tekið upp þennan sið, og ástæðan til, að svo hefir verið gert, mun vera sú, að það þótti því nær ókleift orðið að rannsaka öll einkaleyfi, sem út höfðu verið gefin, til að sjá, hvort hið nýja gæti samrýmst hinum eldri einkaleyfum, eða færi í bága við þau. Og þar hlýtur að koma að lokum, að þessi regla verður tekin upp annarsstaðar, og sennilegast alstaðar, því að einhvern tíma hlýtur að reka að því, að ríkisvaldið segi, að það geti ekki lagt á sig að rannsaka, segjum miljónir einkaleyfa, til þess að geta myndað sjer rökstudda skoðun um það, hvort einhver ný einkaleyfisbeiðni sje þess verð, að henni sje sint.
En ef við eigum að feta í fótspor nágrannaþjóðanna í þessum efnum, og það er ef til vill rjettast, þá hygg jeg, að naumast verði fundin handhægari, auðveldari og ódýrari leið en frv. þetta ráðgerir, og með þetta fyrir augum get jeg mælt með framgangi frv.
Mjer virðist frv. þetta, eftir eðli sínu, eiga best heima í allshn., en árið 1920 mun það hafa verið í fjhn. í þessari hv. deild. Jeg læt þetta atriði liggja milli hluta og geri ekki till. um, í hvaða nefnd það skuli fara. Læt jeg hv. deild ráða því sjálfa.