18.02.1922
Efri deild: 4. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (1568)
7. mál, einkaleyfi
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg vil leyfa mjer að leggja það til, að frv. sje vísað til sjútvn., þar sem mjer er kunnugt um, að hv. 2. þm. G.-K. (B. K.), sem á sæti í þeirri nefnd, en í hvorugri hinna, sem stungið hefir verið upp á, hefir sjerstakan áhuga fyrir þessu máli og hefir kynt sjer það allra manna mest; auk þess hefir sú nefnd lögfræðingi á að skipa, svo að jeg hygg málinu þar vel borgið.