23.02.1922
Neðri deild: 7. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (1583)
26. mál, heimild til sölu þjóðjarðarinnar Sauðár
Flm. (Jón Sigurðsson):
Jeg þarf ekki að fylgja þessu litla frv. úr hlaði með löngu máli. Get að mestu leyti látið mjer nægja að vísa til greinargerðarinnar. Þó ætla jeg að leyfa mjer að drepa á örfá atriði, til glöggvunar nefnd þeirri, sem kemur til með að fjalla um málið.
Allur fjöldi íbúanna á Sauðárkróki stundar landbúnað samhliða smáatvinnu, sem til fellur hjá kaupmönnum, og lítilsháttar útgerð, og um aðra atvinnu er ekki og verður ekki að ræða í náinni framtíð, nema þá um lítilsháttar smáiðju, ef t. d. rafvirkjun kæmist þar á fót.
Með lögum frá 1919 var verslunarlóð Sauðárkróks stækkuð svo, að ekki er sjáanlegt, að kauptúnið vaxi út fyrir hana fyrst um sinn, og þó að kauptúnið stækkaði til muna á næstu árum, mundi það því ekki hafa nein áhrif á jörðina Sauðá, nje hækka hana í verði.
Hjer er því alt öðru máli að gegna heldur en þar, sem um útgerð í stærri stíl er að ræða. Slíkt hefir altaf áhrif á jarðarverðið, og því getur verið rjett að leggjast á móti því að selja þær þjóðeignir, er svo stendur á um.
Aðalástæðan fyrir því, að frv. þetta er fram komið, er sú, að þorpsbúum er ekki einungis nauðsynlegt að fá nothæft land til aukinnar ræktunar heldur og til beitar, og að þeir sjálfir geti ráðið um girðingu á landinu.
Sje jeg svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en legg til, að frv. verði, að umr. þessari lokinni, vísað til allshn.