04.03.1922
Neðri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í C-deild Alþingistíðinda. (1598)
43. mál, leggja jarðirnar Árbæ og Ártún í Mosfellshreppi og Breiðholt, Bústaði og Eiði í Seltjarnarneshreppi
Einar Þorgilsson:
Mjer virðist frv. á þingskjali 55 vera allsendis ótímabært, með því að hvorki liggur fyrir samþykki hlutaðeigandi hreppsnefnda nje sýslunefndar.
Í sveitarstjórnarlögunum frá 1905 er það tekið fram, að löggjafarvaldið megi enga breytingu gera á takmörkum hreppa nje sýslna án þess að hafa leitað álits þessara aðilja.
Nú hafa hlutaðeigandi hreppsnefndir látið í ljós fylstu óánægju við mig yfir þessu, og sýslumaðurinn í Kjósars. hefir tjáð mjer, að sýslunefnd hafi ekki verið aðspurð um þetta mál, en eins og hv. deild mun kunnugt, er Kjósarsýsla aðili í þessu máli.
Það er ekki ástæða til þess að gagnrýna málið efnislega nú, en jeg vona, að hv. deild hrapi ekki að því að samþykkja það.
Jeg legg það til, að málinu verði vísað frá, og leyfi mjer í því skyni að bera fram rökstudda dagskrá, er hljóðar svo, — með leyfi hæstv. forseta:
Með því að sýslunefndin í Kjósarsýslu hefir enn ekki verið aðspurð um þetta mál og því eigi gefist kostur á að láta uppi tillögur sínar, telur deildin ekki rjett, að málið gangi lengra að svo stöddu, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.