14.03.1922
Neðri deild: 22. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í C-deild Alþingistíðinda. (1606)

49. mál, sérleyfi til vatnavirkjunar

Sveinn Ólafsson:

Hæstv. atvrh. (Kl. J.) hefir nú tekið fram flest af því, sem jeg ætlaði að segja. Jeg skal þó bæta nokkrum orðum við, til frekari skýringar frv. þessu.

Þegar vatnamálið kom fyrst til umr., á öndverðu þingi 1919, tók jeg það fram, að flýta bæri úrslitum þess sem mest, vegna hættu þeirrar, sem stafað gæti af vöntun sjerleyfislaga, en vatnsrjettindalögin eru nauðsynleg undirstaða sjerleyfislaga. Um þetta voru margir mjer sammála, og jafnvel flm. þessa frv. (B. J.).

Hættan er í því fólgin, að þeir, sem umráð hafa mikillar vatnsorku, geta, eftir núgildandi lögum, án allrar íhlutunar landsstjórnarinnar, virkjað stórvirkjunum, sem jafnvel gætu orðið þjóðfjel. ofviða og hættuleg. Benti jeg í þessu sambandi á dæmi frá Noregi, þar sem útlendir eigendur vatnsrjettinda urðu fljótari til að reisa stór orkuver en Stórþingið að afgreiða sjerleyfislög og koma að eðlilegum takmörkunum og skilyrðum.

Það er auðsjáanlega þesskonar hætta, sem hefir vakað fyrir háttv. þm. Dala. (B. J.), er hann samdi þetta frv. Hann hefir viljað afstýra þessari hættu, en sú tilraun hans hefir algerlega mishepnast, eins og hæstv. atvrh. hefir bent á. Hvort sá fiskur hefir legið hjer falinn undir steini, sem hæstv. atvrh. (Kl. J.) gat um, nefnilega að með þessu frv. eigi að læða inn óbeinni viðurkenningu þess, að ríkið eigi vatnsrjettindin alment, en ekki einstaklingurinn, það veit jeg ekki. En sje svo, þá hefir sú tilraun einnig mishepnast. Eftir núgildandi lögum er vatnsorkan háð einkaumráðum landeiganda, eins og önnur afnot vatnsins, þótt minni háttar takmarkanir sje til, og verður það þangað til þessu verður breytt með nýjum lögum. Hvort þetta frv. hefir að öðrum þræði verið borið fram í því skyni, að geta enn lengur frestað lögfestingu vatnalaga, veit jeg heldur ekki. En það er víst öllum kunnugt, hvers vegna sú töf er orðin svo löng, og hverjum hún er að kenna. Alt frá 1919 hefir sama firran þessu valdið, og er síst ástæða til að hlaða undir hana

Það eitt er víst, að þótt frv. þetta gangi í gegn, þá erum við jafnilla staddir gagnvart þeirri hættu, sem nú hefir verið minst á, og er frv. því með öllu óþarft og markleysa ein, hvaðan sem á það er litið. Eina viðeigandi afgreiðslan á því er að rjetta þegar upp höndina á móti því.