27.03.1922
Neðri deild: 33. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

1. mál, fjárlög 1923

Þorsteinn Jónsson:

Háttv. þm. Ísaf. (J.A.J.) og háttv. 1. þm. Árn. (E.E.) hafa sagt, að þeir telji strandferðir skipsins Sterlings koma að litlu haldi og álíti, að lítill skaði væri skeður þó þær fjellu niður að miklum mun og styrkurinn til þeirra lækkaði.

Öllum mun kunnugt, að ferðir kringum landið eru mjög óhentugar. Menn, sem koma hingað í brýnum erindum, verða oft að bíða hjer aðgerðarlausir vikum saman áður en þeir geti fengið ferð heim til sín aftur. En ef ferðunum yrði fækkað enn meira, myndu vandræðin aukast.

Háttv. þm. Ísaf. (J.A.J.) sagði, að strandferðunum væri þannig hagað, að strandferðaskipið elti oftast millilandaskipin. Má vera, að mikið sje til í þessu, en þá er að ráða bót á því og breyta áætlun strandferðaskipsins.

Samgöngumálanefnd hefir athugað málið í samráði við forstjóra Eimskipafjelagsins og komist að þeirri niðurstöðu, að það þyrfti að gerbreyta áætlun Sterlings, og mun það verða gert.

Þá talaði háttv. sami þm. um, að flutningur væri lítill með strandferðaskipinu, og er satt, að mikill varningur er ekki fluttur með því, en það hefir ávalt marga farþega meðferðis. Þá er spurningin sú, hvort þetta fólk þurfi að ferðast. Flestir ferðast sjer til nauðsynja; það er aragrúi af fólki, sem fer til þess að leita sjer lækninga, af því hjer eru allir sjerlæknar landsins saman komnir, og auk þess er Reykjavík verslunarmiðstöð landsins. — Jeg býst við, að nefndin muni taka til athugunar, hvort ekki beri að breyta skipinu Sterling þannig, að lestarrúmið minki, en farþegarúmið stækki.

Jeg mun mega segja það með vissu fyrir hönd samgöngumálanefndarinnar, að hún vill ekki minka styrkinn til strandferðanna.