11.04.1922
Neðri deild: 46. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í C-deild Alþingistíðinda. (1640)

80. mál, innflutningsbann og gjaldeyrisráðstöfun

Magnús Kristjánsson:

Jeg hafði ekki ætlað að taka til máls við þessa umr. Mjer þótti þess ekki þörf, því hæstv. atvrh. (Kl. J.), hv. þm. S.-Þ. (Ing. B.) og hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hafa svo rækilega haldið fram hinum rjetta málstað, að jeg hefi litlu við að bæta, enda var frekar sókn en vörn af þeirra hendi.

En það var hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), sem kom mjer til að standa upp. Hann taldi hv. þm. hafa hringlað í þessu máli. Ekki þykist jeg hafa gefið tilefni til þeirra orða, enda hefir hann líklega ekki átt við mig. Mjer var það ljóst, og er enn, að ráðstafanir þær, sem gerðar voru 1920, voru í rjetta átt, þótt minni árangur yrði en skyldi. En það var af því, að þingið í fyrra hringlaði í málinu aftur. Í fyrra var talsvert talað um stjórnarskifti; jeg var ekki með þeim, því jeg hjelt, að stjórnin mundi halda fram af alefli innflutningshöftunum, svo að árangur gæti orðið. Enda hafði hún líka skipað innflutningsnefnd, sem hefir hlotið ómaklegt ámæli.

En því miður varð jeg og fleiri fyrir miklum vonbrigðum, þegar stjórnin ljet undan síga fyrir mótstöðumönnunum; henni fjell þá allur ketill í eld, og hún gerði ekkert. Hún notaði ekki einu sinni nándar nærri þá heimild, sem hún hafði. Þó hygg jeg, að öll stjórnin hafi ekki átt þar um óskift mál, heldur mun fyrverandi fjrh. (M. G.) hafa viljað nota heimildina frekar en gert var en hve mikið kapp hann hefir lagt á það, veit jeg ekki.

Jeg er nú enn sama sinnis og þá, og lít á það sem óhappaverk, að viðskiftanefndin var afnumin í fyrra; er jeg viss um, að af því hefir hlotist óútreiknanleg bölvun. En þótt víxlspor væri stigið þá, er ekki rjett að halda áfram á rangri braut. Þvert á móti þarf að bæta fyrir það, sem gert var, og koma lagi á aftur. Það dugir ekki að leggja árar í bát, heldur bjarga því, sem bjarga má.

Það er furðulegt, hve margar fjarstæður hafa komið fram hjá háttv. andstæðingum, og þó einkum hjá háttv. frsm. meiri hl. (M. J.). Annars var það undarlegt af meiri hluta nefndarinnar að gera hann að frsm. í þessu máli, sem liggur svo fjarri fræðigrein hans. Voru þó víst aðrir til, sem færari hefðu átt að vera. En hv. meiri hl. hefir víst haldið, að þetta hæfði málstaðnum, og var það að vissu leyti rjett. Eða þá að hann hefir álitið þetta hagkvæmara. Þar eð þessum háttv. þm. (M. J.) yrði öðrum fremur fyrirgefið, vegna þess, að hann vissi ekki, hvað hann gerði. Enda kemur það nú á daginn. Fjarstæðurnar voru sem sje svo margar, að ógerningur er að elta þær allar.

Ein var t. d. sú, og heldur lítt afsakanleg, að mikil verðhækkun mundi verða á vörum, sem fyrir eru. Við þessu er nú sleginn varnagli í frv. Og svo bætti hann því við að mjög mundi farið í kringum lögin. Þetta hvorttveggja álít jeg alveg óviðeigandi aðdróttun til kaupmanna, og nokkuð hastarlegt af talsmanni þeirra hjer að lýsa því með átakanlegum orðum, að þeir muni hvorki skirrast við að fjefletta samborgara sína nje brjóta landslög, ef þeir geta komið því við.

Þá var það eitt meginatriði í ræðu hans, að ekki geti komið til mála að taka til þessara ráðstafana nú, þótt þörf hafi verið á þeim 1920 og jafnvel 1921. En hvernig ver hann þá framkomu sína í fyrra?

Hann hjelt því og fram, í sambandi við þetta, að allar skuldir muni hverfa á þessu ári, ef atvinnuvegirnir ganga vel. En þetta er ekki rjett. Ef ekkert eftirlit er haft, þá eru allar leiðir opnar til þess, að sá afgangur eða ágóði, sem verða kann af rekstri atvinnuveganna, lendi utan við og í hendur braskaranna, eða jafnvel úr landi, vegna óhagstæðs gengis, en vjer sætum uppi með skuldasúpuna. Til þess að geta grynt á skuldunum, og hagur vor batni, þarf fyrst og fremst afgang, hagnað á þjóðarbúinu, og í öðru lagi þarf að verja þeim afgangi til þess að greiða það, sem mest kallar að. Þetta er ofur einfalt mál, og vona jeg, að jeg þurfi ekki að eyða fleiri orðum að því.

Þá vildi jeg svara háttv. þm. Ísaf. (J. A. J.) nokkrum orðum. Hann var nú nokkuð beggja blands, eins og hann ætti sjö börn á landi og sjö í sjó. Mjer virtist hann telja það aðalmótbáruna, að kaupmenn, sem ættu vörur, gætu fengið hærra verð fyrir þær heldur en nýjar vörur kynnu að kosta. Þetta er sama kórvillan og hjá háttv. frsm. meiri hl. (M. J.), því að í frv. eru ákvæði, sem fyrirbyggja þetta.

Það getur varla talist hyggilegt að halda altaf áfram að flytja inn vörur, þótt nóg sje til fyrir í landinu, einungis af þeirri ástæðu, að verðið kunni að hafa lækkað eitthvað lítilsháttar. Nei, heldur hitt, að koma öllum nothæfum vörum, sem í landinu eru, í hæfilegt verð, og umfram alt að nota alt, í stað þess að láta það grotna niður og kaupa nýtt í staðinn. Þessi röksemdafærsla þykir mjer næsta undarleg af jafnglöggum manni.

Þá vildi hann láta bankana taka lán, til að hjálpa mönnum til að losna við skuldirnar. En bankamir treystast ekki til að taka slík lán. Þau fást ekki nema til skamms tíma. Venjulega verður að greiða þvílík bráðabirgðalán í árslokin, en bankarnir eiga ekki víst að hafa þá fengið fjeð inn aftur í tæka tíð og í þeirri mynt, sem nota þarf.

Þá vildi jeg víkja nokkrum orðum að háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Lítur hann ærið einhliða, að mjer finst, á mál þetta, þó að sumt kunni ef til vill í skoðunum hans að hafa við einhver rök að styðjast. Hann lagði mikla áherslu á, hve alvarlegt það væri, ef einhverjar hömlur væru lagðar á gjaldeyri alvinnurekenda, og sagði, að þeir mundu ekki una slíkri íhlutunarsemi. En jeg sje það ekki, hvernig hv. þm. (J. Þ.) fær það út úr frv., að beita eigi þessa menn nokkurri rangsleitni, og að taka eigi af þeim gjaldeyrinn með lágu verði. Því engin rangsleitni er þessum mönnum sýnd, þó að gjaldeyrinum sje fyrst og fremst varið til þess að borga með nauðsynjavörur. Hugsa jeg miklu fremur, að atvinnurekendur mundu telja sjer skylt að styðja þessa viðleitni. Það, sem afgangs væri, notuðu þeir svo til sinna þarfa og eftir vild, en ljetu stjórninni aðeins þennan hluta eftir, gegn fullu gjaldi í íslenskum krónum. Þetta er því algerlega ástæðulaus ótti, og líklega einungis tómur fyrirsláttur, en því einkennilegra er, að þessi háttv. þm. (J. Þ.) skyldi ganga svo langt að telja víst, að framleiðendur mundu leggja árar í bát og hætta að framleiða. En jeg veit, að framleiðendur, að minsta kosti sumir þeirra, eru ekki svo illa innrættir, að þeim detti þetta í hug.

Þá sagði sami háttv. þm. (J. Þ.), að auðsætt hefði verið, hve brýn nauðsyn hefði verið á, að afnema viðskiftanefndina, því að ef hún hefði staðið deginum lengur, mundu atvinnurekendur hafa orðið að hætta atvinnurekstrinum.

Sennilega á háttv. þm. (J. Þ.) hjer við, að þá hefði verðið á því, sem til framleiðslunnar þurfti, haldist svo hátt, að hún hefði ekki borið sig. En hver eru nú sannindin í þessu? Skömmu eftir að höftin eru afnumin, leggja atvinnurekendur árar í bát. Hjer varð því það gagnstæða við það, sem reynt er að halda fram, en nóg vitni eru að því, að það er satt, sem jeg segi.

Meira ætla jeg ekki að tala að þessu sinni, en verði ráðist að mjer fyrir þessi hógværu orð, neyðist jeg til að nota rjett minn og taka aftur til máls, ef mjer þykir ástæða til.