03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í D-deild Alþingistíðinda. (1675)
42. mál, landhelgisgæsla
Forsætisráðhenra (J. M.):
Hv. þm. Borgf. (P. O.) sagði, að strandgæslan hefði lagst niður á ófriðarárunum. Það er að vísu að nokkru leyti satt, en engu að síður var gæsluskipið í þjónustu landsins allan þann tíma. Það flutti bæði farþega, póst og farangur á örðugustu tímunum, þegar þörfin var mest og ekki var öðru til að dreifa. Það má að miklu leyti kenna íslensku stjórninni um, að strandgæslan minkaði um þær mundir, því það bar enn þá brýnni nauðsyn til að nota skipið í aðrar þarfir þá.
Hvað viðvíkur fjárframlaginu, sem farið er fram á, skal jeg geta þess, að stjórnin á þar engan hlut að máli, en hjer mun tæplega vera ætlast til neinnar stórrar upphæðar.
Jeg skal svo ekki lengja umræðurnar meira um þetta mál, en vona, að það mæti ekki mótspyrnu og nái fram að ganga.