03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (1685)

42. mál, landhelgisgæsla

Jón Þorláksson:

Jeg hafði afhent hæstv. forseta skriflega brtt., en ef till. kemur ekki til síðari umr. fyr en á morgun, þá tel jeg ekki ástæðu til að láta hana koma til atkvæða nú. Mun hún þá verða prentuð og verða útbýtt á morgun.

Þessi brtt. mín fer í þá átt, að orðin: „og ef nauðsyn krefur .... “ til loka till. falli niður. Jeg lít sem sje svo á, að Dönum beri, samkvæmt sambandslögunum, að kosta alla þá strandgæslu, sem þeir hafa hjer, enda þótt þeir máske sjeu ekki beinlínis skyldir að hafa meira en eitt skip. Nú skilst mjer enn fremur, að þessa fjárframlags sje ekki krafist af Dana hálfu, og þá virðist mjer tæplega rjett að vera að bjóða það fram. Ef stjórn sú, sem semur, þykist ekki geta komist að hagkvæmum samningum án fjárframlaga, þá mun henni verða innan handar að leita heimildar Alþingis í því efni. Brtt. mín segir ekkert af eða á um þetta, en samkvæmt henni býður Alþingi ekki þetta fje fram að órannsökuðu máli.