04.03.1922
Neðri deild: 14. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (1697)

42. mál, landhelgisgæsla

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er satt, sem hv. þm. Dala. (B. J.) segir um tilboðið; það hefir verið til og er víst til enn. Jeg fjekk, er jeg var í Kaupmannahöfn, tilboð um kaup á skipi, og þetta tilboð kom fyrir sjávarútvegsnefnd 1919 til athugunar. Og síðar mun það hafa verið endurnýjað á þinginu 1920 eða 1921, og komið þá fyrir sjávarútvegsnefnd. En annars hygg jeg, að þetta tilboð hafi ekki verið sjerlega aðgengilegt, ef farið hefði verið nánar út í það. Það barst um það leyti, er Þjóðverjar höfðu ekki ráð yfir sínum skipum, máttu ekki selja án leyfis bandamanna. Annars finst mjer óþarft að ræða þetta mál hjer á þessum stutta tíma, sem markaður er þessum umræðum. Það er enn hægt að fá jafngóð kaup á skipi, ef til útgerðar kemur.