07.03.1922
Efri deild: 15. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (1718)
42. mál, landhelgisgæsla
Halldór Steinsson:
Aðeins stutt athugasemd. Hv. þm. Vestm. (K. E.) komst svo langt nú í síðari ræðu sinni, að eigi myndi þurfa nema þrjú skip til nægilegrar landhelgisgæslu, og væru tvö þeirra „stationeruð“, en eitt laust. En þarna fer hv. þm. (K. E.) beinlínis með öfgar, því að vitanlegt er, að þegar t. d. vetrarvertíð er í Vestmannaeyjum, þá eru einnig ágætar vertíðir bæði á Vesturlandi og Norð-Austurlandi. Væri því alveg óumflýjanlegt, ef fullkomið gagn ætti að vera að landhelgisgæslunni, að hafa mörg skip til eftirlitsins, helst ekki færri en 6–8. En hvað sem þessu líður, þá tel jeg alveg sjálfsagt að samþykkja till. eins og hún liggur fyrir.