23.03.1922
Efri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (1732)
28. mál, innlend skiptimynt
Frsm. (Halldór Steinsson):
Jeg vil aðeins taka það fram, að fyrir málinu eru færð svo glögg rök í nefndarálitinu, að jeg hefi þar engu við að bæta. Vöntun á smápeningum er, eins og allir vita, orðin mjög tilfinnanleg hjá okkur, og ættu allir að vera sammála um það, að þörf sje að bæta úr þeim skorti. Þó að bankarnir hafi flutt inn um 40 þúsund krónur í smápeningum, þá eru þeir jafnharðan fluttir aftur út úr landinu. Nú er svo komið, að ekki er hægt að hafa smáviðskifti, nema að kaupandi eða seljandi þurfi að greiða hinum í frímerkjum. Þó að það sje að vísu engin frágangssök, þá vilja þó frímerkin týna tölunni, ef hirðusemin er ekki því meiri.
Það er vísast, að það kosti ríkissjóð dálítið að fá nýja skiftimynt, en hann tapar líka á því að kaupa útlenda smápeninga fyrir danskar krónur og selja þá svo aftur fyrir íslenskar. Málið er svo ljóst, að jeg álít, að það þurfi ekki frekari skýringa við.