03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (1739)
73. mál, lánveitingar úr Ræktunarsjóði
Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):
Það er rjett hjá hv. flm. (J. A. J.), að jeg er ekki á móti þessari till. En þó er alls ekki víst, að hægt verði að sinna henni. Svo sem hv. þm. er kunnugt, var það ákveðið á síðasta þingi, að Ræktunarsjóður skyldi leggja hinum væntanlega Ríkisveðbanka eina miljón króna í skuldabrjefum eða peningum. Nú er það augljóst, að betra er fyrir bankann að fá nokkuð í handbæru fje, og því mun fráfarandi stjórn hafa ákveðið að hætta að lána. En hitt er mjer ókunnugt, hvers vegna hún ljet svo ekki stofna bankann.
Eftir síðasta reikningi sjóðsins á hann alls yfir miljón króna. Þar af eru 286 þús. kr. í peningum, sem standa inni á vöxtum í Landsbankanum. Það er því handbært talsvert fje, ef bankinn verður ekki stofnaður fljótlega, en um það get jeg ekkert sagt að svo stöddu.