28.03.1922
Neðri deild: 34. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (174)
1. mál, fjárlög 1923
Jakob Möller:
Jeg á 3 brtt. á þskj. 153, sem jeg gjarna vil mæla með, þó jeg hinsvegar telji erfitt að mæla með þeim, þar sem þær hallast allar á þá sveifina að auka útgjöldin; þó er þessi upphæð ekki stór, aðeins 7000 krónur samtals. Jeg lít nú svo á, að þessari upphæð væri vel varið, ef samþykt væri að veita hana, en hún er hinsvegar ekki svo stór, að það skifti nokkru um hag ríkisins.
Þá vildi jeg fara nokkrum orðum um hverja till. sjerstaklega, og vík þá fyrst að brtt. undir lið 15. Mjer er skylt að þakka háttv. frsm. (B. J.) góðar undirtektir og meðmæli með henni; hygg jeg, að öll nefndin hafi litið till. mildu auga, þó hún hinsvegar vildi ekki gera hana að sinni till. Það hefir nú jafnan þótt viðsjárvert að veita einstökum mönnum listamannastyrk; hafa menn þá óttast, að margar yrðu beiðnirnar; en jeg vænti þó hins besta til handa þessum till. við í hönd farandi atkvæðagreiðslu, ekkert síður af hendi hv. nefndarmanna en annara þingdeildarmanna
Báðir þeir menn, sem hjer er um að ræða, sóttu um styrk til þingsins, og gengu umsóknir þeirra fyrst til háttv. fjvn., og þegar útsjeð var um, að þessi háttv. nefndi vildi bera þær fram, tók jeg þær upp, og kom því till. ekki fyr fram en þetta.
Páll Ísólfsson fór fram á að fá 5000 kr. styrk hvort árið, 1922 og 1923. Jeg sá mjer nú ekki fært að fara fram á svo mikið, og hjer kemst heldur ekki að nein fjárveiting fyrir yfirstandandi ár. En Páll mun nú hafa fengið 1000 kr. af listamannastyrk þessa árs, og yrði till. mín samþykt, þá fengi hann þó aðeins helming þess, sem hann biður um.
Og jeg verð að líta svo á, að þó hann fengi þessar 4000 kr., þá væri það ekki nema makleg viðurkenning fyrir dugnað hans á listamannsbrautinni og fyrir þann sóma, sem hann hefir aflað landi sínu og þjóð með ástundun sinni.
Hann hefir nú stundað nám sitt samfelt í 8–9 ár upp á eigin spýtur, eða þá með atbeina frænda sinna og vina. En þó að námstíminn sje orðinn langur, þá má ekki skilja það svo, að hann hafi slegið slöku við námið, heldur þvert á móti, eins og vottorð kennara hans bera með sjer og jeg hefi hjer við hendina. En nú sjer hann sjer ekki fært að halda lengur áfram eða ljúka námi nema að fá þennan styrk, og því hefi jeg leyft mjer að bera hann fram.
Jeg vil því jafnframt með leyfi hæstv. forseta lesa hjer upp nokkrar setningar úr vottorðum þeim, sem jeg mintist á, og sjest á þeim, hvílíkur listamaður Páll Ísólfsson er þegar orðinn, að dómi þeirra manna, sem vit hafa á og þekkja til.
Próf. Rob. Teichmüller, Leipzig, skrifar svo 19. janúar 1922:
Herra Páll Ísólfsson er gæddur frábærum hljómlistargáfum og er orgelsnillingur með afbrigðum. Auk þess er hann ágætur píanóleikari.....“
Eins og heyra má, er hjer ekkert dregið úr lofinu, og auðsjeð að hugur fylgir máli og að kennarinn hefir mikla trú á lærisveini sínum. Slík vottorð eru ekki gefin hverjum sem um biður, bara til að hjálpa mönnum til að fá styrk.
Annar. Hans Grisch að nafni, sem líka á heima í Leipzig, skrifar sama dag:
„Herra Páll Ísólfsson er gæddur hinum ágætustu hljómlistargáfum. Tónsmíðar hans, er hann bar undir mig, eru þrungnar frjóu hugmyndaafli og ósviknum hljómlistartilfinningum....“
Og loks er hjer vottorð frá aðalkennara hans, próf. Karl Straube, sem byrjar svo:
„Jeg votta hjer með fúslega, að herra Páll Ísólfsson frá Reykjavík er sem hljómlistarmaður gæddur afburðagáfum og frábærri getu. Alvara hans og viljaþrek sem listamanns og hin einlæga skyldurækni hans við vinnuna er örugg trygging fyrir því, að hann muni kallaður til að verða í fararbroddi samlistarmanna sinna, er hann hefir til hlítar lokið námi og náð fullum þroska sem listamaður . . . .“
Þetta vottorð, sem er lengra, er sömuleiðis dagsett í Leipzig 19. dag janúarmánaðar 1922.
Þessi vottorð sýna, að maður sá, er þau ræða um, er líklegur til þess að gera þjóðargarðinn frægan, ef hann nær aldri og getur haldið áfram til enn meiri fullkomnunar. Það er að vísu satt, að litlar líkur eru til þess, við Íslendingar fáum að njóta hans hjer heima, og það út af fyrir sig gæti orðið því til fyrirstöðu, að ríkið færi að kosta hann.
En það er ekki rjett að láta það ráða atkvæði sínu að þessu sinni og spilla þessari litlu styrkveitingu.
Fyrst og fremst er á það að líta, að við getum notið hans samt, þó að hann ílendist ekki á meðal okkar. Það er með listamenn á þessu sviði eins og skáldin, að eftirdæmi þeirra og verk verða okkar eign og auka hróður lands og þjóðar. Það eru einmitt slíkir menn, sem hann, er geta unnið fámennri þjóð langt um meira gagn úti í víðri veröld heldur en með því að vera heima.
Jeg skal einmitt benda á það í þessu sambandi, að tvö nýju ríkin, sem risu úr rústum eftir ófriðinn mikla, hafa í viðreisnarbaráttu sinni notið ákaflega mikils góðs einmitt af frægð listamanna sinna. Þau áttu sinn hvorn manninn úti í heimi, snillinga einmitt á sviði tónlistarinnar, sem vafalaust hafa unnið þeim meira gagn meðal stórþjóðanna en allir stjórnmálamenn þeirra til samans. Þannig getur verið óbeinlínis um ómetanlegt gagn að ræða af starfi þessara manna. Og enda þótt engin von sje um endurgjald, vil jeg þó, að þm. athugi, hvað þjóðin í heild sinni getur fengið fyrir þennan litla styrk úr ríkissjóði. Hv. þdm. verða að gera sjer það ljóst, hvort þeir vilja með atkvæði sínu stuðla að fullkomnun þessa unga manns á listamannsbrautinni eða hitt, að tefja fyrir honum og gera honum örðugt fyrir, með því að fella styrkinn niður og láta hann einan um að berjast að takmarkinu. Yrði það ofan á, get jeg þess til, að fleirum en mjer fyndist það lítill sómi Alþingi Íslendinga.
Annars talaði háttv. frsm. (B. J.) svo vel fyrir þessu máli, að jeg þykist ekki fleiru þurfa þar við að bæta.
Þá er það hinn maðurinn, Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari. Hann fór fram á 3000 kr. styrk, en jeg sá mjer ekki annað fært, vegna sparnaðaranda þingsins, en að klípa af honum 500 kr.
Um Þórarin er alt öðru máli að gegna en Pál. Hann er orðinn rótgróinn hjer heima, svo að við getum vænst að fá að njóta hans um langt skeið. Hann verður að neyðast til að spila á kaffihúsum og annarsstaðar, er menn safnast saman, til þess að hafa ofan af fyrir sjer, en með því er framför hans í listinni stöðvuð. Hann vantar fje til að geta gefið sjer tómstundir til að æfa hin erfiðari viðfangsefni, svo hann nái meiri þroska. Hann hefir stundað nám við hljómlistarskólann í Kaupmannahöfn og hlotið mikið lof fyrir leikni sína. Hann byrjaði 8 ára að leika á fiðlu og hefir stundað það síðan, svo þetta verður lífsstarf hans, og er það undir Alþingi komið, hvað ágengt honum verður í því og hversu ánægjulegt það verður fyrir þjóð hans og sjálfan hann.
Jeg skal geta þess að fái hann styrkinn, hefir hann hug á að halda ókeypis námsskeið í fiðluspili. Fiðlan er það hljóðfærið, sem mestra vinsælda nýtur meðal almennings hjá frændþjóðum vorum, enda handhægast og ódýrast. Mundu slík námsskeið því líkleg til að auka ást á sönglist í landinu og söngment. Svo hefir það reynst í Noregi, og er síst fjarri að ætla, að fiðlan gæti fundið líkan jarðveg hjer á landi.
En eins og jeg sagði áðan, þá þarf ekki að óttast, að við fáum ekki að njóta Þórarins hjer heima, svo óhætt er þessvegna að ljá þessum litla styrk atkvæði sitt.
Þá er það þriðja brtt. mín. Þar er líka um styrk að ræða, en hann er svo smávaxinn, að engin þörf er að fjölyrða um hann, því þó hann sje lítill, verður ekki sagt, að hann snerti lítilsvert atriði. Jeg fer fram á að hækka styrkinn til Íþróttasambands Íslands um 500 krónur. Þessi styrkur er nú í fjárlögum þessa árs 2000 kr., en í fjárlagafrv. stjórnarinnar hefir hann verið lækkaður niður í 1500 kr., og þannig samþyktur við 2. umr. þessa máls.
Aðallega hefir Íþróttasambandið varið þessum styrk til bókaútgáfu, sem snertir starfssvið fjelagsskaparins. Við könnumst við Sundbókina og Glímubókina. Þær liggja frammi á lestrarsal Alþingis, og fleiri leikfimisreglur hefir sambandið látið semja og prenta.
Hjer er um nauðsynjamál að ræða og mikilsvarðandi fyrir þjóðina, enda óbeinlínis viðurkent með styrk þeim, sem veittur hefir verið á undanförnum árum úr ríkissjóði.
Í fjelagsskap þessum eru saman komnir margir áhugasamir menn, ungir og gervilegir, sem verja miklum tíma til íþróttaiðkana, en fá ekkert í aðra hönd, hvorki fyrir tímaeyðslu nje alla þá fyrirhöfn, sem þeir þurfa á sig að leggja.
Hjer er um þjóðfjelagsmál að ræða, sem sjálfsagt er að styrkja, enda getur það ekki varðað ríkissjóð miklu, hvort upphæð þessi er 500 kr. hærri eða lægri, en fjelagsskapinn munar það nokkru.
Að vísu er á öðrum stað ætlaður dálítill styrkur til U. M. F., en um hann er alt öðru máli að gegna. Hann verður aldrei notaður til íþróttakenslu eða þess háttar, þó að sumir ef til vill hugsi svo. U. M. F. starfa að öðru fremur. eins og t. d. skógrækt, sandgræðslu og annari jarðrækt, og til þess fer styrkurinn.
Þessi styrkur, sem hjer er um að ræða og jeg hefi flutt brtt. mína við, er því sá eini, sem ríkissjóður leggur til íþróttastarfsemi landsmanna, og verður því ekki hægt að segja, að sú upphæð nemi miklu, þó að veittar sjeu til þess 2000 krónur.