03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (1743)
73. mál, lánveitingar úr Ræktunarsjóði
Magnús Guðmundsson:
Jeg játa það, að jeg er ekki nægilega kunnugur þessu máli. En þó er mjer um það kunnugt, að fyrv. atvinnumálaráðherra (P. J.) hafði mikinn áhuga fyrir stofnun fasteignabankans. Það er því ekki rjett eða maklegt að gefa í skyn, að hann hafi viljað tefja fyrir því máli. Þvert á móti var hann búinn að ráða bankastjóra fyrir hinn fyrirhugaða banka.
Mjer hefir hugkvæmst, að það mætti fara einskonar meðalveg í þessu máli og lána út nokkurn hluta af fje Ræktunarsjóðsins, t. d. 75–100 þús. krónur. Gæti slíkt komið bændum að allmiklu liði, þótt ekki væri meira. Og yfirleitt tel jeg sjálfsagt að samþykkja tillöguna.
Jeg veit ekki, hvort það hefir verið beinlínis ákveðið að hætta að lána út úr Ræktunarsjóðnum. En ef fyrv. atvinnumálaráðherra (P. J.) hefir gert slíka ráðstöfun, þá hefir hann gert það af því, að hann hefir ætlað sjer sem fyrst að setja bankann á stofn.
Jeg vil því leyfa mjer að stinga upp á því við hæstv. atvrh. (Kl. J.), hvort hann ekki sæi sjer fært að lána út alt að helmingi af fje Ræktunarsjóðsins, en hjeldi hinu eftir, ef bankinn yrði stofnsettur á þessu ári.