28.03.1922
Neðri deild: 34. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (178)
1. mál, fjárlög 1923
Eiríkur Einarsson:
Það voru örfáar brtt., sem jeg er viðriðinn og vildi minnast lítið eitt á, svo og nokkrar, sem fjvn. og ýmsir aðrir háttv. þm. hafa komið með. Það er þá fyrst XVII. brtt. á þskj. 153, sem verður fyrir mjer. Hún hljóðar um styrkaukningu til dr. Helga Pjeturssonar og hefir háttv. síðasti ræðumaður (H. K.) gert grein fyrir henni. Í núgildandi fjárlögum er þessum mæta manni ætlaðar 4000 kr. en eins og mönnum er kunnugt, hefir hann verið lækkaður um 1000 krónur í stjórnarfrv. Brtt. þessi fer nú aðeins fram á að fella þessa lækkun burt, og mun það ekki að óþörfu gert. Þessi maður, sem hjer er um að ræða, hefir erfiðan fjárhag og fyrir þungu heimili að sjá. Hrökkva laun hans ekki einusinni til þess, að hann geti lifað sæmilegu borgaralegu lífi, og skal jeg sem dæmi nefna, að hann hefir ekki haft efni á því að veita rafmagni í hús sitt til lýsingar.
Þessi styrkur er þó ekki einasta veittur af þörf, heldur að maklegleikum, því þessi maður er einn sjerkennilegasti vísindamaður vor Íslendinga. Eru þeir, því miður, helst til fáir, sem feta í fótspor hans, að þræða ekki fjárgötur fjöldans. Fyrir því fer svo oft sem fer, að þegar hver fetar í annars fótspor, þá troðast göturnar að lokum svo niður, að menn sökkva að síðustu í grafgöturnar. En þessum manni er ekki svo háttað. Hann fer einn saman yfir ótroðið land, og fer geist. Hann er ekki einasta vísinda- og hugsjónamaður, heldur hefir hann valið sjer að viðfangsefni alvarlegustu gátur lífsins og ritað margt, sem er alveg einstætt í íslenskum bókmentum. Væri það vansi fyrir þing og þjóð að láta slíkan mann svelta, enda vona jeg að svo verði ekki og háttv. þdm. sýni hug sinn með því að samþykkja þessa brtt.
Þá kem jeg að XXIII. brtt. á þskj. 153, a-lið. Skal jeg vera fáorður um hana, því jeg geri ráð fyrir, að háttv. samþingismaður minn, sem betur er þeim hnútum kunnur, geri grein fyrir henni síðar. Jeg vil þá byrja með því að þakka sjútvn. fyrir undirtektir hennar í þessu máli. Þá vil jeg benda háttv. þingdeild á það, að þótt henni ef til vill kunni að þykja upphæðin nokkuð há, 16 þúsundir króna, þá ber á það að líta, að hlutaðeigendur eru reiðubúnir að leggja mikið í sölurnar og svara tveim þriðju á móts við landssjóðsstyrkinn úr eigin vasa. Þess er líka von, því þörfin er geysimikil. Lending á Eyrarbakka er, eins og alkunnugt er, afarvond og bryggjum og öðrum uppskipunartækjum í mesta máta áfátt. Á Eyrarbakka hefir helsti oft sannast talshátturinn, að margur drukknar nærri landi, og hefir innsiglingin þar reynst miklu mannskæðari en nokkur jökulá, sem yfir hefir verið að sækja hjer á landi
Virðist því ekki minni ástæða til að bæta hana og lendinguna en brúa árnar. Og meiri nauðsyn mun oftast reka menn á sjóinn til fiskifanga en á sjer stað marga ferðina yfir jökulsárnar, hverja sem er. Verði þessi styrkur veittur, þá vonast jeg til, að það komi fljótlega í ljós, að sú fjárveiting verður allra fjárveitinga fyrst til að borga sig. Mun öllum það ljóst, hvers virði það er að geta farið á sjó, sem er jafnfiskisæll og þar á sjer stað, og eiga von góðrar lendingar, þegar gefur, að jeg ekki nefni mannslífin, er sparast og ekki verða metin til fjár.
Þá skal jeg minnast lítið eitt á brtt., sem jeg flyt ásamt háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.). Hún hljóðar um lánveitingu til tveggja klæðaverksmiðja, sem reisa á, aðra á Suðurlandi, en hina á Austfjörðum, og nemur sú lánbeiðni alls 100000 krónum til jafnra skýrsla hans hafi að vísu aðallega snert Austurland. Jeg flutti þingsál.till. um tóvinnumálsundirbúning á þingi í fyrra, og skifta. Háttv. samflutningsmaður minn (Sv. Ó.) hefir þegar skýrt frá þessu máli, þó komst þá málið í það horf, sem það er í nú, þótt landbúnaðarnefndin sleikti utan úr því af þröngsýni sinni og ynni því nokkuð tjón. Jeg vildi að stjórninni væri gefið rýmra verksvið og falið að láta rannsaka staðhætti og gera áætlanir um kostnað o. fl., en sú rannsókn þótti nefndinni of dýr, og lagði því á móti þessu. Orsökin til þess að jeg kom fram með þetta málefni, var sú sannfæring mín, að hjer væri um nauðsynlegt þjóðþrifamál að ræða og að þjóðin verði að reyna að bjarga sjer sjálf í þessum efnum, en ekki þurfa að sækja alt til annara landa. Auk þess hvöttu kjósendur mínir mig til að gera þetta, og mun það yfirleitt almennur vilji manna á Suðurlandsundirlendi, að þar verði stofnað til slíks iðnaðar. Hefir og verið stofnað þar fjelag til þess að vinna að undirbúningi málsins. Skoraði það á stjórnina að láta rannsaka, hvar hentugastur staður væri til þessarar virkjunar, og sendi fyrv. atvinnumálaráðherra, Pjetur Jónsson, verkfræðing austur í þessu skyni. Skyldi hann rannsaka Reykjafoss í Ölfusi og senda stjórninni síðan skýrslur sínar og áætlanir. Tók þessi verkfræðingur, sem var Guðm. Hlíðdal, með sjer annan mann danskan, Axel Petersen að nafni, til þess að aðstoða sig við starfið. Komust þeir svo að því, eftir ítarlega rannsókn, að í meðalvexti hefir Reykjafoss nálægt 105 hestöfl, og er það nægilegt til að reka með nokkuð stóra klæðaverksmiðju. Þá var næst mælst til þess, að verkfræðingur, eða aðrir, sem til þess væri trúandi, fengi að rannsaka kostnað við innkaup vjela og annara nauðsynlegra áhalda til verksmiðjunnar, og tók fyrverandi atvrh. (P. J.) því vel. Vona jeg, að núverandi atvrh. (Kl. J.) taki við af honum í þessu efni og reynist þessu máli hlyntur og styðji framgang þess.
Þetta er nú að segja um verklegan undirbúning málsins. En því miður get jeg ekki sagt eins góða sögu af fjárhagslegum undirbúningi þess og háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), að svo og svo mikið fje sje þegar til reiðu. En það get jeg fullyrt, að ef rannsóknin ber æskilegan árangur, þá mun vart standa á fjenu þar eystra, því jeg veit, að mönnum þar er þetta mikið áhugamál, og munu þeir því leggja sig í líma með fjárframlög þau, sem með þarf. En hitt er almenningi þar og ljóst, að það þarf verulega góða rannsókn, sem óhætt sje að treysta. Hafa menn þar eystra einmitt brent sig í þessu efni. Þeir hafa áður komið sjer upp tóvinnuvjelum, en þá vantaði sjerþekkingu; starfið gekk illa og varð að leggja það niður aftur. Var það þó ekki sökum þess, að verksins væri ekki þörf, heldur af hinu, að manninn með sjerþekkingu vantaði, bæði til að stofna og leiða fyrirtækið. Vona jeg, að í þetta skifti verði tekið nægilegg tillit til þess, hve mikið sjerþekkingin hefir að þýða við slíka starfsemi.
Jeg verð annars að geta þess, að mjer þykir leitt, að þetta nauðsynjamál virðist ekki eiga að fagna nægilega föstum heildarsamtökum. Að vísu hefir málinu verið tekið vinsamlega bæði af þingi og stjórn, en þar þarf svo mikils við, og ætti öllum að vera það gleðiefni, að bæði Sunnlendingar og Austfirðingar eru vaknaðir til fullrar meðvitundar um hina miklu þörf.
Hvað annars snertir brtt. mína og háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), þá vona jeg, að hún nái fram að ganga. Það má vera, að hún hefði mátt vera betur sniðin, t. d. að miða lánsheimild við einn stað, er fyrstur yrði tilbúinn að sínu leyti; voru sumir í fjvn. hlyntir þessu. Hefði jeg fyrir mitt leyti ekki verið því mótfallinn, ef samflutningsmaður minn hefði getað fallist á það. Hefði jeg alls ekki talið það eftir, ef Múlasýslur hefðu orðið fyrri til taks, þótt þær hefðu fengið fjárveitinguna. Gæti þetta einmitt orðið til þess að vekja kapp hjá mönnum að ná sem fyrst takmarkinu, og myndi þá um leið flýta stórum fyrir fyrirtækinu. Veit jeg líka, að helmingur þessa fjár, eða 50 þúsundir, nær alls ekki 1/3 kostnaðar við hverja verksmiðju sem er og nokkuð ætti að kveða að. Lánveitingin er undir öllum kringumstæðum heppileg til örfunar heima í hjeruðunum. Hvernig sem þetta annars verður, þá er ekkert að óttast fyrir þessa háttv. þd. með að veita lánsheimildina, því þetta liggur eftir sem áður að öllu leyti í hendi stjórnarinnar, að meta tryggingar og málið að öðru leyti áður en lánið yrði veitt.
Mjer kom á óvart till. frá háttv. þm. Norður-Múlasýslu (B. H. og Þorst. J.), er eingöngu fer fram á að fella burt að veitingin sje staðbundin við Reyðarfjörð. Jeg skal láta liggja milli hluta hvort rjettara er, því jeg þekki ekki svo staðhætti þar eystra, en jeg geri samt ráð fyrir, að háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hafi rjett fyrir sjer, því hann tók hóflega í málið en háttv. 2. þm. N.-M. (B. H.) fór rasandi og veittist að mjer með ávítunum fyrir tillöguhluta minn og kallaði fleyg. Þykir mjer það nokkuð undarlegt, því hann hefir tekið upp þennan „fleyg“ minn í sína tillögu.
Ef hann vildi tillögu hv. 1. þm. S.-M. vel, var ekkert hægara fyrir hann en að fella minn tillöguhluta í burt. Vona jeg, að hv. þm. (B. H.) geri einhverja grein fyrir, hvað hann meinar með þessu fálmi sínu, því hjer á alls ekki að komast að nein hreppapólitík, og hefir okkur háttv. 1. þm. S.-M. ekki dottið það í hug.
Þá mintist háttv. 2. þm. N.-M. (B. H.) á, að öðruvísi stæði á um Austurland en Suðurland, þar eð hjer væri þegar komin á ullarverksmiðja. Það er að vísu satt, að Álafoss er til, en Reykjavík er líka til og þar búa upp undir 20 þús. manna, og Álafoss verður fyrst að geta fullnægt kröfum Reykjavíkur, áður en hann getur orðið Suðurlandi að liði.
Það má lengi deila um, hvar þörfin sje mest og hvar eigi að byrja. Veit jeg til, að stjórnarráðinu hafa borist mörg brjef þar að lútandi.
Jeg get svo lokið máli mínu um þetta efni og vonast eftir góðum undirtektum háttv. deildar, enda yrði málið í góðum höndum, þar sem hæstv. stjórn mundi ekkert í því gera nema með góðum undirbúningi.
Þá ætla jeg að minnast dálítið á síðustu brtt. háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.) á þskj. 153. Jeg skal ekki leggja neinn dóm á brtt. sjálfa, heldur ætla jeg aðeins að athuga hugsunina, sem á bak við hana liggur, að miklar líkur eru til, að víða verði atvinnubrestur á þessu ári.
Það er ein af aðalástæðunum til að hið opinbera má ekki fella niður allar verklegar framkvæmdir, svo sem vega- og símalagningu. Það er nauðsynlegt, að allir landsmenn hafi nægilegt að gera. Þar kemur til greina, ekki eingöngu hin fjárhagslega hlið málsins, heldur og að hver landsmaður á að hafa tryggingu fyrir, að hann geti fengið atvinnu.
Hver góður bóndi sjer fyrir því, að vinnufólk sitt hafi góð verkfæri í höndunum, er slátturinn byrjar, og háttv. Alþingi búnast áreiðanlega illa, sjái það ekki landsmönnum fyrir atvinnu sjer til lífsuppeldis, og opinber starfræksla er miklu tryggara spor í áttina til þess, að sem flestir fái eitthvað að gera, heldur en að hvert bæjarfjelag taki að sjer að sjá íbúum sínum fyrir atvinnu.