05.04.1922
Neðri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (1788)

76. mál, baðlyfjagerð innanlands

Lárus Helgason:

Jeg stend ekki upp til að mótmæla þessari till., heldur aðeins til að benda á, að það er ekki kunnugt, að fjárkláði sje til í Skaftafellssýslum, og veit jeg því, að bændum þar mun ekki vera vel við að þurfa að leggja út í kostnað við útrýmingarböðun. Það er eðlilegt, að þeir landshlutar, þar sem mest ber á kláðanum, taki hann til alvarlegrar íhugunar, en það ber þó að athuga, að útrýming hefir áður verið reynd og mishepnast; og svo getur farið enn.

Nú er fjárþröng í landinu, og álít jeg því ekki rjett að hefja allsherjarböðun án þess að vissa sje fyrir fullum árangri. En þótt tvær baðanir fari fram sama veturinn, er engin vissa fengin fyrir því, að það komi að fullu gagni.

Jeg álít því hagkvæmara, að rækileg böðun fari fram í þeim hjeruðum, þar sem mest brögð eru að kláðanum, og enda alstaðar þar sem hann finst, en ekki sje ráðist blindandi í útrýmingarböðun um land alt. Enda er mjer ekki kunnugt um, að nokkurn tíma hafi orðið vart fjárkláða í Skaftafellssýslum, og í ýmsum fleiri sýslum landsins mun lítið eða jafnvel ekkert hafa orðið vart við kláða nú í seinni tíð.