22.04.1922
Neðri deild: 52. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (1804)

88. mál, saga Alþingis

Flm. (Þorsteinn Jónsson):

Að fáum árum liðnum eru 1000 ár liðin frá því, að hið íslenska þjóðveldi var stofnað. Það var stofnað á Þingvöllum, að því er fróðir menn telja, árið 930. Það var stofnað með setningu hins fyrsta Alþingis. Alþingi verður því 1000 ára árið 1930.

Þúsund ára afmæli Alþingis er hið merkasta afmæli, sem haldið hefir verið hjer á landi. Þjóðin mun vilja halda það hátíðlegra en nokkurt annað afmæli, sem haldið hefir verið á landinu.

Þar sem nú þessi tími nálgast óðum, virðist ekki vanþörf á að fara að hugsa fyrir undirbúningi þessa merka afmælis.

Þessi þingsályktunartillaga fjallar um þann undirbúning, sem mest virðist ríða á að byrjað verði á í tæka tíð.

Jeg býst vart við því, að nokkur hv. þingmaður sje okkur tillögumönnunum ósammála um það, að þörf sje á að skrifa sögu Alþingis, og að því verki verði lokið fyrir 1930.

Vjer Íslendingar höfum verið kallaðir söguþjóð. Þó eigum vjer enga skráða samfelda sögu, nema smáágrip. Verði nú skrifuð ítarleg saga Alþingis, fáum við einskonar meginás í sögu vora, einskonar mæni, sem allar taugar sögu þjóðarinnar liggja að og kvíslast út frá. Alþingi hefir jafnan haft örlagaþræði þjóðarinnar að meira eða minna leyti í höndum sjer.

Vegna aldurs og uppruna er Alþingi talið af sagnfræðingum eitthvert hið merkilegasta þjóðþing á Norðurlöndum. Og það hefir haft meiri þýðingu fyrir íslensku þjóðina fyr á öldum en flest önnur þing fyrir aðrar þjóðir.

Alþingi á ætt sína að rekja til fornra germanskra þinga, en okkar vísu forfeður gerðu það sjerstaklega merkilegt þegar í upphafi, eða við stofnun þess. Það hjelst svo og óbreytt að miklu leyti til ársins 1262. Eftir þann tíma hnignar því mjög, en helst þó uppi þar til árið 1800, og liggur síðan niðri um hálfan fimta tug ára. Til samanburðar mætti geta þess, að annarsstaðar á Norðurlöndum leggjast fornu þingin mörgum öldum fyr niður.

Jeg vil nú fara nokkrum orðum um það, hvernig jeg hefi hugsað mjer þessu starfi komið fyrir og hvernig það ætti að vinnast. Þó vil jeg slá þann varnagla þegar, að jeg muni ekki leggja þá undirstöðu í þessu efni, að hún verði látin óhreyfð, enda geri jeg ráð fyrir — verði þingsályktunartillagan samþykt — að stjórnin kveðji sjer til aðstoðar sagnfróða ráðunauta, og þá er það þeirra að segja frekar um, hversu vinna skuli verk þetta.

Mjer finst sjálfsagt að skifta sögu Alþingis í 3 aðalkafla. Fyrsti kaflinn yrði þjóðveldistíminn, frá 930–1262. Hann þarf að byrja á því að lýsa hinum fornu germönsku þingum í sambandi við áhrif þeirra á vora fyrstu löggjafa, svo og fyrirkomulagi Alþingis þegar í öndverðu, segja frá stofnun þess og valdsviði. Þá yrði að skýra frá breytingum, sem á því verða til 1262, og frá löggjöf og dómsvaldi. Enn fremur frá gildi þess sem menningarstofnun og sem aðalstöð andlegrar mentunar í landinu, íþróttalífs og samkvæmislífs. Þá yrði að rekja að nokkru helstu mál, sem koma fyrir á þinginu, en þangað koma nær því öll stórmál þjóðarinnar. Meðfylgjandi sögu hins forna Alþingis þurfa að vera æfiágrip allra lögsögumanna og jafnvel helstu goðanna. Enn fremur goðatal, að svo miklu leyti sem mögulegt er að semja það. Þessi kafli sögunnar endaði á því að segja frá upplausn lýðveldisins. Til þess að skrifa þennan kafla þarf að rannsaka öll forn heimildarrit, er snerta sögu Íslands, enn fremur vísindaleg rit, er skráð hafa verið um hið forna Alþingi og íslenska lýðveldi. Þá verður og að fylgja nákvæm sögustaðalýsing af Þingvöllum, bygð á nákvæmum rannsóknum.

Annar kafli Alþingissögunnar næði yfir tímabilið 1262–1800. Hefst sá kafli á upphafi konungsvaldsins á Íslandi með Gamla sáttmála, lögtekningu Jónsbókar og svo því, hvernig kirkju- og konungsvald togast á um völdin. Hann skýrði og frá því, hvernig konungsvaldið nær smátt og smátt meiri tökum, og öllum þeim breytingum, er verða á þinginu til 1800, valdsviði þess o. s. frv. Einnig frá helstu málum, sem fyrir því lágu, löggjöf og dómum. Þessum kafla ætti að fylgja stutt æfiágrip lögmanna, höfuðsmanna og hirðstjóra, og einnig, ef hægt væri, lögrjettumannatal. Eins og kunnugt er, hefir þessi kafli sögu okkar verið lítt rannsakaður enn, svo til þess að skrá þennan kafla Alþingissögunnar þarf að rannsaka fornbrjef, Alþingisbækurnar, annála og önnur sögurit og skjöl, prentuð og óprentuð. Gera má ráð fyrir, að margt af heimildunum frá þessum árum yrði að sækja til Kaupmannahafnar, og enn þá óvíst, hvar sumt af þeim er að finna. Er þetta því alt ærið rannsóknarefni, og því nauðsyn, að byrjað sje á þessu í tíma.

Þriðji kafli Alþingissögunnar næði frá 1845–1930. Hann byrjaði að segja frá endurreisn Alþingis og undirbúningi hennar, svo og fyrirmyndum hins nýja Alþingis.

Til að rekja sögu Alþingis síðan 1845 eru Alþingistíðindin glöggar heimildir. En sú saga yrði í líku formi og saga Alþingis hins forna. Í sambandi við hana og henni fylgjandi væru skráð stutt æfiágrip allra þeirra manna, sem sæti hafa átt á þingbekkjum síðan 1845, konungsfulltrúa, landshöfðingja og ráðherra. Ritið flytti og myndir af þeim öllum. Enn fremur yrði og ritið skreytt myndum þeirra manna, sem koma við sögu hins forna Alþingis, eftir því sem kostur er.

Þetta eru vitanlega lauslegar hugleiðingar um fyrirkomulag ritsins, enda tók jeg það fram áðan, að það verður sagnfræðinganna og annara fróðra manna að ákveða þar um nánar. Jeg hefi aðeins flutt hugleiðingar þessar um fyrirkomulag sögunnar til þess, að þeir geti sjeð, hvað vakað hefir fyrir okkur flutningsmönnum og hinu háa Alþingi, ef það samþykkir tillöguna.

En það vil jeg taka fram að lokum, og jeg veit það með vissu, að okkar söguelska þjóð muni fagna því, ef hún á von á að fá þúsund ára sögu Alþingis, vel og ítarlega skráða, árið 1930. Og jeg treysti því, að hv. þdm. leggi ekki steina í götu þessa máls. Þetta verk hlýtur að sjálfsögðu að kosta nokkurt fje, en það á líka að verða og mun verða okkur til gagns og sóma.

Jeg hefi heyrt þær raddir, að það væri óþarfi að byrja á þessu starfi nú þegar. En þetta er ekki rjett athugað. Eigi starfið að verða vel unnið, þá þarf miklar rannsóknir í sambandi við það, sjerstaklega þegar þess er gætt, hvað saga þjóðarinnar er enn að miklu leyti óplægður akur.