25.04.1922
Efri deild: 51. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (1829)

88. mál, saga Alþingis

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Jeg hafði eigi búist við því, að þetta mál myndi koma svo fljótt til umr. hjer í deildinni. En jeg verð að lýsa yfir þeirri skoðun minni, að jeg tel, að þetta mál hefði vel mátt bíða næsta þings. Greiði því atkvæði á móti því að sinni. En gangi það fram til 2. umr., þá hefi jeg hugsað mjer að bera fram brtt. við 2. umr.