25.04.1922
Efri deild: 52. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (1834)

88. mál, saga Alþingis

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Jeg verð nú að segja það, að jeg hefi ekki annað grætt á ræðu hæstv. fjármálaráðherra (Magn. J.) en það, að hann vilji gjarna fá heimild handa stjórninni til að láta rannsaka og rita sögu Alþingis. Jeg vil nú ekki að svo stöddu máli gefa stjórninni slíka heimild, þar sem jeg hefi engar upplýsingar fengið enn um, hvernig eigi að vinna verkið eða hverjir eigi að gera það. Um hvorugt þetta hefi jeg fengið neinar upplýsingar hjá hæstv. fjrh. (Magn. J.). Röksemdir mínar standa að öllu leyti óhraktar.

Jeg get ekki gert mikið úr því, að hjer sje aðeins um heimild að ræða. Jeg býst ekki við, að hv. þm. sjeu svo barnalegir, að þeir viti ekki, að með þessu er ákveðið, að verkið skuli vinna. Eða með öðrum orðum, það er ákveðið, að fje skuli ausa í þetta verk, eftir því sem hæstv. stjórn þóknast að ákveða. Hjer er um verk að ræða, sem er mjög svo náið þinginu, sem er í raun rjettri innanþingsmál, en stjórnin á að ráða því algerlega, hvernig það skuli unnið og af hverjum. Jeg gæti trúað því, að þingið kynni að iðrast þess síðar að hafa afsalað sjer íhlutunarrjettinum yfir öllu því mikla fje, sem hjer á að fara að eyða til lítils eða einkis gagns.

Hjer er einnig um mjög mislita sögu að ræða, eins og hæstv. fjrh. (Magn. J.) hefir bent á, og jeg efast um, að við eigum menn, sem eru færir um að leysa það af hendi. Og auk þess er ekki um verulega sögu að ræða nú síðari árin. Enginn er fær um það enn að rita sögu þingsins eftir 1874. Atburðirnir standa oss altof nærri. Jafnvel vafasamt, að saga ráðgefandi þinganna yrði metin rjett og óhlutdrægt. Við eigum eftir að komast nógu langt frá viðburðunum til þess að geta litið hlutlaust eða sagnfræðilega á þá.

Af öllum þessum ástæðum kysi jeg helst, að málið fjelli niður nú, en þó mun jeg að sjálfsögðu greiða atkvæði með brtt. minni.