06.04.1922
Neðri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (1845)

75. mál, rannsókn á máli Árna Theódórs Péturssonar

Þorsteinn Jónsson:

Jeg lít líkt á þetta mál og hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Það er undarlegt að skipa stjórninni að rannsaka sínar eigin gerðir, nema því aðeins, að þá reglu eigi að taka upp, þegar stjórnarskifti verða, að skipa nýju stjórninni að rannsaka allar embættaveitingar fráfarandi stjórnar. Býst jeg við, að oft geti þótt rík ástæða til þess. Stjórnarandstæðingar telja venjulega helming allra embættaveitinga verandi stjórnar ranglátar. En hins vegar stendur nú svo vel á, að stjórnin getur athugað þetta í vor, um leið og skipað verður í kennarastöðurnar. Jeg vil því leggja til, að máli þessu verði vísað til stjórnarinnar.