16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
Sætaskipan
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg held að athugasemd hv. 1. þm. S.-M. (Sv.Ó.) hafi ekki verið vel íhuguð. Jeg tel fyllilega rjettmætt, að leitað sje afbrigða til þess að gera á 2. fundi það, sem mönnum láðist að gera á 1. fundi. Hitt er efamál, hvort rjett sje að veita með afbrigðum undanþágu frá því fyrirmæli, að hluta skuli um sæti, ef einhver þingmaður mælir á móti. Jeg hygg, að hugsunin hafi verið sú, að hver þingmaður fyrir sig eigi hjer rjett.