24.02.1922
Neðri deild: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (1904)
24. mál, skipun viðskiptamálanefndar
Bjarni Jónsson:
Það er sjálfsagt að vera stuttorður, enda tók jeg alt það fram í hinni fyrri ræðu minni, er jeg segja vildi.
Hæstv. fjrh. (M. G.) svaraði mjer svo, sem átt hefði jeg eingöngu við núverandi stjórn. En jeg stefndi lengra fram og átti við fleiri þing og fleiri stjórnir.
Og því, sem hæstv. fjrh. (M. G.) sagði um verðlagsskrármálið, verð jeg að mótmæla. Samkvæmt verðlagsskrá er goldið sama verð eftir sama verð mæli, þó að verðmiðill falli eða hækki. Og þó að krókavegir náttúrunnar sjeu margvíslegir og hæstv. fjrh. (M. G.) órannsakanlegir, þá er þó hverjum og einum óhætt að hugsa rjett og vilja vel, að komi á rjettan stað niður.
Það var ekki af því, að jeg vildi draga fjöður yfir það litla, sem gert hefir verið til þess að bjarga landinu úr fjármálakreppunni, að jeg sagði, að það eina, sem gera þyrfti, væri að auka framleiðsluna og bæta markaðinn. Ekki býst jeg og við, að margir sjeu hjer innan veggja, er misskilið hafa þessi orð mín, eins og hv. þm. Ak. (M. K.), enda mun hann hjer ekki andlega staddur, þó að allir sjái líkamann í þingmannssætinu. Svo verð jeg að álykta, þar sem þm. leyfir sjer upp í opið geð allra þeirra votta, er ræðu mína heyrðu, að hafa eftir mjer orð, sem jeg hefi aldrei talað, og nota þau svo til persónulegra árása á mig. Má slíkt ástand, sem það, er þm. (M. K.) er í, næsta kynlegt vera, og erfitt að gera sjer grein fyrir því. Sjest hefir í skáldsögum, að konur þær, sem fyrst eiga að fæða, gangi í þungum þönkum og sjeu annars hugar. Ef til vill er líkt ástatt fyrir þm. (M. K.), að hann gangi með þann þunga, er truflar allar hans hugsanir, eða þá að eins sje um hann og mann þann, er Drauma-Jói var nefndur. Hann sá marga þá hluti gerast í veröldinni, er aðrir menn sáu ekki, enda voru það draumsýnir.
Sje þm. (M. K.) líkur Drauma-Jóa, þá er síst að furða, þó að hann hafi dreymt, að nýr þm. væri kominn úr Dölum. Og eftir innræti mannsins og hyggindum var eðlilegt að ætla hinn nýja þm. heimskari þeim, er nú fer með umboð Dalamanna.
Annars er þess ekki langt að minnast, að sami hv. þm. Ak. (M. K.) sást á þembingsreið hjer í deildinni (M. K.: Það var þm. Dala. (B. J.)). Já, það var þm. Dala., sem vakti eftirtekt á þessu fyrirbrigði og ljet svo um mælt, að þm. leitaði sjer stoðar hjá kjósendum sínum. Nú þykist jeg vita, að þm. (M. K.) muni hafa fylgt því ráði, en Akureyringar ekki hirt um að hjálpa honum af baki, er þeir sáu, hvers eðlis reiðskjótinn var. Mun þm. (M. K.) því orðinn samvaxinn tryppi þessu, og má því vænta, að það sje ekki í síðasta sinni í dag, að hann sjáist lemja fótastokkinn hjer í deildarsalnum.