24.02.1922
Neðri deild: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í D-deild Alþingistíðinda. (1908)
24. mál, skipun viðskiptamálanefndar
Jakob Möller:
Það er aðeins örstutt athugasemd. Dæmi það, sem jeg tók af einstaklingsskuldaskiftum, til að skýra fyrir hv. samþm. mínum (J. Þ.), hvernig gróði af gengismun við lántöku geti átt sjer stað, á alveg eins við, þegar um skuldaskifti ríkisins, eða heildarinnar, við útlönd, er að ræða.