24.02.1922
Neðri deild: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (1909)
24. mál, skipun viðskiptamálanefndar
Bjarni Jónsson:
Jeg skal einnig vera mjög fáorður. Það er aðeins auðmjúkt þakklæti til hv. þm. Ak. (M. K.). Jeg hefi aldrei hjer á þingi heyrt jafnklaufalega afsökun og þá, er hann hafði fram að færa, til varnar frumhlaupi sínu. Sýnir það best, að samviskan hefir slegið hann.
Hann er að bregða mjer um, að jeg hafi ekki hyggindi, sem í hag koma. „Maður, líttu þjer nær, liggur í götunni steinn“.
Ætli það væri ekki full þörf á að reikna fleiri út, t. d. þá, sem hyggindi hafa, er í óhag koma. Það ætti þm. þessi (M. K.) að athuga, og líta svo í eigin barm. Um mig verður aldrei sagt með sanni, að aðrir menn hafi haft óhag af mjer. En verður það sama sagt um hv. þm. Ak. (M. K.)? Því mun þjóðin svara á sínum tíma.