21.02.1922
Sameinað þing: 3. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (1921)

21. mál, fjárhagsástæður ríkissjóðs

Pjetur Ottesen:

Jeg hafði raunar búist við því, að till. sú, sem við nokkrir þm. fluttu í Nd. (þskj. 20), mundi verða tekin á dagskrá á undan þessari till., þar sem hún var fyr fram komin, og sýnilegt, að í framkvæmdinni yrði það rjettara og hallkvæmara að skipa slíka nefnd í hvorri deild út af fyrir sig, en úr því sem komið er skiftir þetta í sjálfu sjer ekki miklu máli, þar sem innihald till. er mjög líkt og svo að segja stefnt að sama marki í báðum. Sá munur var þó á till., að við vildum láta kjósa 7 menn í nefndina, í stað þess, að með þessari tillögu er ekki gert ráð fyrir nema 5 mönnum, og álítum við, að með því mundi henni sækjast starfið fyr og betur, og framkvæmdir í þessu máli þar af leiðandi ekki þurfa að lengja þingtímann áð neinum mun.

Önnur ástæðan, sem aðgreinir tillögurnar, er sú, að síðari till. gerir ráð fyrir því, að starfssvið nefndarinnar sje ekki aðeins bundið við þetta þing, heldur eigi þetta líka jafnframt að verða nokkurskonar milliþinganefnd. Því erum við mótfallnir. Við viljum, að þegar sje tekið til starfa, og af því starfi leiddi, að eitthvað yrði gert eða framkvæmt á þessu þingi, en af hugmyndinni um, að þetta ætti jafnframt að vera milliþinganefnd, mundi aftur leiða það, að lítið eða minna yrði starfað að þessu nú. Það er deginum ljósara, að störf milliþinganefnda hjer hafa komið að litlu liði yfirleitt, en kostað mikið fje. Þess vegna viljum við, að nefndarskipunin sje aðeins bundin við það, er afkastað verður á þessu þingi.

Jeg vil taka það fram, að við væntum þess, að þessu máli verði fullur gaumur gefinn, svo mikið alvörumál sem það er, að sem fyrst, og það þegar á þessu þingi, verði lagður grundvöllur til þess að draga úr útgjöldum ríkissjóðs.

Hv. flm. (Sv. Ó.) hefir skýrt vel frá sparnaðarþörfinni, og hefi jeg þar engu við að bæta, en til frekari skýringar hafði jeg gert dálítinn samanburð á útgjöldum ríkissjóðs árið 1916 og árið 1921, sem fróðlegt er og vel þess vert að athuga, er vjer viljum gera oss grein fyrir því, hvert stefnir hjá oss í fjármálunum.

1916 gengu 62,499 kr. til æðstu umboðsstjórnar í landinu, en 1921 326,500 kr., eða með öðrum orðum, sá útgjaldapóstur hefir fullkomlega fimmfaldast.

Alþingiskostnaður 1916 var 31,853 kr., en 1921 var hann 355,000, og hefir þannig 11-faldast.

Til dómgæslu og lögreglustjórnar gengu 1916 174,426 kr., en 1921 752,600 kr., eða ferfalt meira.

Til heilbrigðismála fóru 1916 288,697 kr., en 1921 897,900 kr., og hefir því þrefaldast.

Til samgöngumála fóru 1916 817,620 kr., en 1921 2,370,900 kr., og hafa þau útgjöld þrefaldast.

Til kirkju- og kenslumála fóru 1916 377,480 kr., en 1921 1,334,800 kr., eða fullkomlega þrisvar sinnum meira.

Til vísinda, bókmenta og lista fóru 1916 117,365 kr., en 1921 262,700 kr., eða fullkomlega tvöfalt meira.

Til verklegra fyrirtækja fóru 1916 202,524 kr., en 1921 431,700 kr., og hefir sá póstur rúmlega tvöfaldast.

Til eftirlauna og styrktarfjár fóru 1916 93,125 kr., en 1921 229,100 kr., eða fullkomlega tvisvar sinnum meira en áður.

Til verklegra framkvæmda og samgöngumála samanlagt fóru 1916 1,019,944 kr., en 1921 2,802,600 kr., eða tæplega þrefalt meira.

Til alls annars fóru 1916 1,145,445 kr., en 1921 4,157,400, eða fjórfalt meira en áður. Hjer er þó slept vöxtum og afborgunum af lánum, sem 1916 voru 247,861 kr., en 1921 2,134,500, og hefir því sá útgjaldaliður tæplega tífaldast.

Gjöld samkvæmt sjerstökum lögum, þingsályktunum o. fl. voru 1916 658,339 kr., en 1921 1,968,500 kr., eða þrefalt meiri en áður. Hjer er þó mörgu slept, svo sem vöxtum og óvissum útgjöldum, skyndilánum og fyrirframgreiðslu, enda er ekki hægt að skýra frá því, hverju það hefir numið, nema með frekari rannsóknum. Þessar tölur nægja til að sýna það ljóslega, að full ástæða er til að reyna að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, sjerstaklega þar sem skuldir hans hafa vaxið stórkostlega, og eins og ráða mátti af ræðu hæstv. fjrh. (M. G.), er hann skýrði frá fjárhag landsins fyrir skemstu, tekjur ríkissjóðs fara stórkostlega minkandi. Af öllu þessu má það ljóst vera, að því leyti, sem till. stefna báðar að því að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, og að nú þegar sje byrjað á því verki, að við getum fyllilega tekið höndum saman við hv. flutningsmenn síðari till.