25.02.1922
Neðri deild: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í D-deild Alþingistíðinda. (1935)
25. mál, tala ráðherra
Eiríkur Einarsson:
Ástæðan til þess, að jeg tek hjer til máls, er sú, að jeg er hvorki samþykkur tillögunni nje rökstuddri dagskrá hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.). Það hefir risið ágreiningur út af því, hvernig skýra ætti stjórnarskrána, og virðist mjer, að menn hafi gert fullmikið að því að bera hana fyrir sig, og þar sem hún nú orkar tvímælis, vil jeg láta fara eftir því, sem hagkvæmast er.
Þegar stjórnarskráin var samin, var aðeins ætlast til, að hægt væri að fjölga ráðherrum, en yfirleitt var álitið, að þeir ættu að vera 3, og er eðlilegt, að stjórnarskráin dragi dám af þeirri ákveðnu skoðun löggjafanna á þeim tíma. Stjórnarskráin gerir aðeins ráð fyrir, að ráðherrar sjeu 1–3, en ákveður ekkert nánar um það. Og þótt stj.skráin sje helgigripur, er vel skyldi gæta, ætti þó að varast að leggja meira í hana en hugsun löggjafanna hefir náð til, er hún var samin. Ef menn ganga inn á það að fækka ráðherrum, því þá ekki að fækka þeim niður í 1 eins og 2?
Jeg er hlyntur brtt., þótt hún sje ekki eins og jeg óskaði. Jeg hefði helst kosið, að Alþingi tilnefndi aðeins einn ráðherra, en hafðar opnar dyr, þannig, að fjölga mætti ráðherrunum með konungsúrskurði, ef þurfa þætti.
Höfuðástæða mín til þessa er ekki spámaður, heldur sú, að þingið er oft neytt til að koma miður heilsteypt fram í ráðherravalinu; enda hefir þetta ráðherraval einatt orðið sá reynsluskóli og sambræðingur, sem hefir gefist illa öllum aðiljum og alið mjög á óheilindum hjá þingi og stjórn. Má vera, að þar sje ekki síst að leita ástæðna til þeirra misfellna, sem bryddað hefir á í stjórnarfari síðari ára.
Ef nú Alþingi veldi aðeins einn ráðherra, hvað er þá því til fyrirstöðu, að þeim sje fjölgað um einn eða tvo eftir ástæðum, ef einhver mikilsvarðandi mál eru á dagskrá þjóðarinnar, og beri þeir þá aðalábyrgðina í þeim málum? En til að skipa þá nægir konungsúrskurður. En þótt jeg kysi helst þetta fyrirkomulag, 1 ráðherra, er gæti í nauðsyn bætt við sig einum eða tveimur til aðstoðar, mun jeg þó greiða brtt. atkv.; hún er þó næst vilja mínum af því, sem liggur fyrir.
Það hefir verið talað um að bera þetta mál undir kjósendur, en að því er snertir mína kjósendur, þá veit jeg, að það er óþarft, því þeir vilja fækka ráðherrunum, ef mögulegt er, bæði vegna sparnaðar og af vandræðum þeim, sem stafa af sífeldum ráðherraskiftum og bræðslum, er því fylgir.
Ef brtt. verður feld, geri jeg ráð fyrir að verða á móti rökstuddri dagskrá, en áskil mjer óbundið atkvæði gagnvart frumtillögunni.