04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í D-deild Alþingistíðinda. (1957)

77. mál, skaðabótamál gegn Íslandsbanka

Flm. (Jón Baldvinsson):

Mjer þótti leitt að heyra, hvernig hæstv. forsrh. (S. E.) tók í þetta mál.

Hann sagði, að það liti ekki vel út að fara að höfða mál gegn forsætisráðherra eða bankaráði Íslandsbanka. Hvers vegna? Er það vegna þess, að þetta sjeu svo „hátt settar persónur“?

Þá kvaðst hann ekki geta lagt á þetta neinn dóm fyr en hann hefði rannsakað það. Þetta er nú hans vanaviðkvæði í hverju máli. En hann endaði þó ræðu sína á því að leggja dóm á málið, og það svo rækilega, að hann kvaðst gera samþykt till. að fráfararatriði.

Þá vildi hann láta líta svo út, að hagur bankans væri góður, og hefðu því fjármálaráðstafanir hans reynst allsæmilega. Þessu til sönnunar vitnaði hann í matið, sem telur ekki tapað nema 10% af hlutafje bankans. Matið vil jeg ekki rengja, en jeg vil benda hæstv. forsrh. (S. E.) á, að bankinn hefir þá líka tapað öllum varasjóð sínum, sem var um 4 miljónir kr. Hitt er líka alkunna, hversu bankinn hefir hlunnfarið þjóðina til þess að skrapa saman upp í tapið. Hátt upp í ár hefir hann þverskallast við að lækka vextina, þótt Landsbankinn hafi gert það, en vill nú láta þingið fara að kaupa sig til þess með nýjum ívilnunum.

Jeg held, að þeir sjeu ekki margir, sem neita því, að við mundum standa miklu betur að vígi nú, ef Íslandsbanki hefði ekki misbeitt valdi sínu á sviði fjármálanna. Því hefir verið haldið fram, og ekki verið hrakið, að verðfall krónunnar sje honum að kenna, og að enska lánið hafi verið tekið hans vegna. Þetta eru þungar sakir. Mjer sýnist því, að hv. deild geti vel samþ. till., og jeg trúi nú ekki öðru en hæstv. forsrh. (S. E.) hugsi sig um, áður en hann segir af sjer fyrir þetta smáræði.

Jeg hefði ekki talið það óviðeigandi, að þessu máli yrði vísað til stjórnarinnar, eins og hv. þm. Ak. (M. K.) lagði til, en eftir að hafa heyrt undirtektir hæstv. forsrh. (S. E.) verð jeg að leggja á móti því.