04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (1959)

77. mál, skaðabótamál gegn Íslandsbanka

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla ekki að ræða málið, því að jeg mun verða að verja mínar gerðir, þegar stefnufarirnar koma. En jeg tel mig ekki standa svo hátt, að lögin ekki nái til mín, og því mun jeg ekki greiða atkv. um till. Og ekki tel jeg rjett að vísa málinu til stjórnarinnar, þar sem hún hefir lýst því, að hún sje á móti því.