05.04.1922
Neðri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í D-deild Alþingistíðinda. (1973)

74. mál, rannsókn á skaðabótamáli A. L. Petersens

Magnús Guðmundsson:

Jeg skal reyna að vera stuttorður, enda finnast mjer þessar umr. næsta óþarfar.

Hv. frsm. (M. P.) hafði það eftir mjer, að jeg hefði sagt, að þessi maður hefði verið beittur nokkuð hörðu. Jú, jeg sagði, að sumt af skjölunum segðu það, en önnur ekki, svo úr því hann tók upp eitthvað af setningunni, þá átti hann að hirða hana alla.

Jeg gat um, að með þessum 5000 kr. virtist Petersen ánægður, og ástæðan til þess, að þær voru greiddar, voru einmitt aðgerðir þingsins í fyrra.

Jeg sje ekkert á móti því, þó að málið fari til stjórnarinnar. Það er rjett hjá hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), að þar er um nýja menn að ræða, þótt jeg hins vegar sje ekkert hræddur við rannsóknina.

Um vottorð landssímastjórans er það að segja, að það fer algerlega í bága við það, sem þeim hafði áður á milli farið, landssímastjóranum og Petersen.

Hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) hjelt því enn fram, að þetta væri hneykslismál, og bygði það á uppsögn stöðunnar, og sömuleiðis nefndi hann einhverjar upplýsingar, sem Petersen hefði neitað að gefa einhverjum, og að því, er mjer virtist, hefði Petersen verið þar í rjetti sínum. Þetta efast jeg nú um að svo stöddu, eða að það hafi nokkru valdið um uppsögn Petersens, en rjett er vitanlega að rannsaka það, verði önnur atriði þessa máls tekin til athugunar.

Um húsakaupin veit jeg ekki til, að neitt sje að athuga við. Að minsta kosti verð jeg að taka það fram, að jeg varð aldrei var við, að í þeim kaupum hefði Petersen notið neinnar ívilnunar. Hann bauð húsið á 70 þús. krónur, og landssímastjórinn lagði með þeim samningum, enda var þá ekki um handhægt nje viðunandi húsnæði að ræða. Kaupunum lauk svo, að Petersen sló 5 þús. kr. af húsinu, og mun þar hafa ráðið nokkru um, að hjer var um peningaborgun að ræða, og hana samstundis. En um ívilnun heyrði jeg aldrei talað.

Mjer er og ókunnugt um, hvernig Petersen hefir fengið loforð um 10 þús. kr. uppbót, enda heyrir slíkt skaðabótamál alls ekki undir landssímastjórann, og kemur líka í bága við það, að landssímastjórinn telur manninn ekki færan um að gegna stöðunni.